Page 1 of 1

Smá um ABS, Spólvörn á E46 (á líklega við fleiri bíla)

PostPosted: Fri 15. Feb 2008 13:24
by IngiSig
Datt í hug að koma með smá innlegg eftir að lesa þessa umræðu hérna þótt þetta tengist lítið;
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=27476

Um daginn var ég að aka inn innkeyrslu sem búið var að salta og sanda en samt töluvert slabb og blautur snjór. Ég tók spólvörnina af og keyrði nokkuð ákveðið í gegn. Þegar ég stoppaði kviknuðu held ég 4 ljós í mælaborðinu; ABS, bremsuljósið (orange), Parkbrakeljósið (orange) og síðan gat ég ekki sett spólvörnina á aftur. Drap á bílnum, startaði aftur og öll ljósin komu á.
Talaði TB og töldu þeir hugsanlegt að slabb og sandur hafi farið fyrir skynjara. Ég fór með bílinn inn í skúr, skolaði undan honum, beið í 2 klst og þá voru öll ljós slokknuð þegar ég startaði aftur.

PostPosted: Fri 15. Feb 2008 13:25
by Aron Andrew
Hef lennt í þessu líka á e46, þá reyndar skolaði ég ekki eða neitt, keyrði bara í svona 5 mín.

PostPosted: Fri 15. Feb 2008 17:04
by DABBI SIG
Jebb.. Hef séð þetta líka, virðist ekki vera nein bilun þannig séð en jú þetta getur hafa gerst vegna óhreininda sem hefur farið í skynjarann.