Page 1 of 1
facelift ljós á e39

Posted:
Tue 12. Feb 2008 23:57
by skaripuki
sælir meðlimir,, var að kaupa facelift ljós á e39 bílinn hjá mér en staðan er svona að ljósin eru með appelsínugulu stefnuljósunum og ég er ekki alveg að fíla það þannig að spurningin er sú að er hægt að skipta appelsínugula stykkinu út með því að taka ljósin í sundur eða eitthvað,,, allar hugmyndir vel þegnar


Posted:
Wed 13. Feb 2008 00:10
by saemi
Ja það er hægt. En þarft að baka þau til að na þeim i sundur!

Posted:
Wed 13. Feb 2008 01:11
by IvanAnders
Láttu mig endilega vita hvernig þetta fer hjá þér...


Posted:
Wed 13. Feb 2008 02:05
by Mánisnær
Er ekki auðveldara að nota bara hitbyssu.

Posted:
Wed 13. Feb 2008 08:09
by skaripuki
IvanAnders wrote:Láttu mig endilega vita hvernig þetta fer hjá þér...

hvað hefurðu ekki trú á þessu ?


Posted:
Wed 13. Feb 2008 08:35
by Danni
Ég er ekkert svo viss um að það sé hægt að skipta stykkinu út. Þyrftir að sprauta það frekar.
Annars hef ég aldrei tekið svona ljós í sundur og aldrei séð það gert svo ég veit þetta ekki alveg 100% en þegar ég var með svona hvít á gamla 540-inum þá skoðaði ég þetta einmitt og gat ekki séð betur en að appelsínugula/krómaða stykkið er áfast við ljósið.

Posted:
Wed 13. Feb 2008 09:39
by IvanAnders
skaripuki wrote:IvanAnders wrote:Láttu mig endilega vita hvernig þetta fer hjá þér...

hvað hefurðu ekki trú á þessu ?

Ég vona innilega að þú finnir góða lausn á þessu, því að ég er í sama pakka, og vantar solid solution.


Posted:
Wed 13. Feb 2008 09:48
by bimmer
Er ekki Svezel með svaka reynslu af svona eldamennsku?

Posted:
Wed 13. Feb 2008 09:51
by skaripuki
já er einmitt að pæla með eitt,,, afturljósin hjá mér eru original appelsínu gul vs rauð,,, og það er búið að spreyja eða mála appelsínugula partinn svartann,,,, er ekki hægt að gera það sama við stefnuljósið inní facelift ljósinu?? og hvar fæ ég svona sprey?

Posted:
Wed 13. Feb 2008 11:04
by Hannsi
hef spaðað svona ljós og það þarf að losa glerið af að framan til að komast að þessu.
Mundi bara setja þetta á margir bílar sem eru verulega töff með appelsínugul stefnuljós. Sérstaklega dökk græn

Posted:
Wed 13. Feb 2008 12:22
by skaripuki
já kannski en er þetta hægt og hvar fæ ég svona sprey til þess að spreyja þetta og hvernig losa ég glerið af ?

Posted:
Wed 13. Feb 2008 12:35
by saemi
skaripuki wrote:já kannski en er þetta hægt og hvar fæ ég svona sprey til þess að spreyja þetta og hvernig losa ég glerið af ?
Baka / hita. Þá getur þú alveg eins tekið þetta appelsínugula úr ef þú ert búinn að opna ljósið hvort eð er!

Posted:
Wed 13. Feb 2008 13:04
by íbbi_
varúð samt að það vilja oftar en ekki fylgja eilíf móðuvandamál ljósum sem er búið að opna

Posted:
Wed 13. Feb 2008 13:57
by skaripuki
já fékk ljósin mjög ódýrt en hérna er eitthver hérna sem getur gert þetta fyrir mig ?? alþrif og mössun á bílinn fyrir þann sem tekur þetta að sér !!!!!