bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Púst...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=27455
Page 1 of 2

Author:  Mazi! [ Tue 12. Feb 2008 20:28 ]
Post subject:  Púst...

Sælir og sælar! :)

var að spá hvort það sé bannað að hafa engann kvarðakút eða semsagt þessi kútur sem er undir miðjum bílnum held hann heiti kvarðakútur..

Fengi maður skoðun á 2.5" rör alla leið með endakút ?

Author:  Tommi Camaro [ Tue 12. Feb 2008 20:36 ]
Post subject: 

fer eftir árg. með hvarfan
en ég held að það sé skilda að hafa einn kút eða túpu

Author:  Einarsss [ Tue 12. Feb 2008 20:43 ]
Post subject: 

Ættir að sleppa nema það sé ógurlegur hávaði í þessu

Author:  Mazi! [ Tue 12. Feb 2008 20:45 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Ættir að sleppa nema það sé ógurlegur hávaði í þessu


væri mikill hávaði ef ég set kút á endann með pílu? :-k

Author:  arnibjorn [ Tue 12. Feb 2008 20:47 ]
Post subject: 

Ætlaru að setja þetta undir stock 4cyl 316?

Author:  Mazi! [ Tue 12. Feb 2008 20:53 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Ætlaru að setja þetta undir stock 4cyl 316?


Vinsamlegast ekki fara hlæja af mér útaf því eða stríða mér :oops: en já það er planið og Loftsíu svepp kanski (hef heyrt misgóðar sögur af svona síum....)

Author:  arnibjorn [ Tue 12. Feb 2008 20:56 ]
Post subject: 

bimma_frík wrote:
arnibjorn wrote:
Ætlaru að setja þetta undir stock 4cyl 316?


Vinsamlegast ekki fara hlæja af mér útaf því eða stríða mér :oops: en já það er planið og Loftsíu svepp kanski (hef heyrt misgóðar sögur af svona síum....)


Ég ætla ekki að hlæja né stríða þér, en ef ég á að segja eins og er þá á þetta ekki eftir að hljóma vel :?

En þú gerir auðvitað bara það sem að þú vilt :D

Author:  Steinieini [ Tue 12. Feb 2008 21:01 ]
Post subject: 

Líklega eftir að hljóma svipað og lada sport með ónýtt púst :(

Author:  Mazi! [ Tue 12. Feb 2008 21:02 ]
Post subject: 

hvað mælir fólk með til að fá flott sánd í bílinn? allt svo bara með breytingu á pústi, það má alveg vera smá hávaði 8)

Author:  bjornvil [ Tue 12. Feb 2008 21:10 ]
Post subject: 

bimma_frík wrote:
hvað mælir fólk með til að fá flott sánd í bílinn? allt svo bara með breytingu á pústi, það má alveg vera smá hávaði 8)


OOOOOO ;) 8)

Author:  FinnurKarls [ Tue 12. Feb 2008 21:19 ]
Post subject: 

hehehe já, ég hef verið að spá í því sama í smá tíma, var að hugsa um hvort að kvarfakúturinn fyllist ekki á endanum, og líka ef maður tekur hann undan bílnum hvort að það væri ekki hægt að mixa einhvern kút með smá netum í svo að það komi ekki einhver crazy hávaði :D finnst alveg meiri læti í honum en góðu hófi gegnir, liggur við að fólk í hverfinu kvarti undan manni :oops: :D 8)

Author:  Tommi Camaro [ Tue 12. Feb 2008 21:41 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Ætlaru að setja þetta undir stock 4cyl 316?

þetta verður AKA FART CANNON, 316 flæðir ekki nóg til að hafa 2,5 púst

Author:  Svessi [ Tue 12. Feb 2008 21:41 ]
Post subject: 

Eins og kom framm í einhverjum fyrri pósti hérna þá er það svoleiðis að ef bíllinn er skráður ´95 eða nýrri þá verður hann að hafa hvarfakút.
Eldri bílar þurfa ekki að hafa hvarfakút.

Ég held að bíllinn hjá þér myndi fá skoðun bara með rör og einn endakút svo lengi sem hann væri ekki of hávær, er samt ekki alveg 100% viss á því.

Persónulega myndi ég benda þér á að hafa lítinn opinn kút í miðjunni og svo eitthvað þokkalegann "prump" kút í endann ef þú hefur áhuga á því.

Það að hafa opinn kút í miðjunni dempar aðeins "prump" hljóðið í lágum snúning og "prump" hljóðið verður "fallegra" í hærri snúning.

Þú ert sennilega með 1600cc eða 1800cc um 90 hp hjá þér, ekki rétt?
Þá er 2" er alveg meir en nóg. Og alls ekki fara í stærra en 2,5" - í sambandi við púst er stærra ekki alltaf endilega betra.

Í sambandi við síurnar, passaðu að kaupa þér ekki eitthvað ódýrt drasl. Frekar spreða í K&N, Green eða eitthvað álíka, getur kostað þig 10-15 kall með röri. (Getur velverið að það sé orðið dýrara) Þú getur keypt þér ágæt, ódýr rör uppí tómó (allavega gast það einu sinni) en ég myndi kaupa mér góða síu annarsstaðar (Nema þeir séu komnir með eitthvað gott stuff).

Og mundu að þótt þú setjir opið púst og cone síu þá ertu ekki að tala um 20+ hp aukalega, kannski 3 hp max - ef það. Finnur varla fyrir því, enn þú heyrir meira í því. 8)

Í sambandi við pústverkstæði þá er það alltaf BJB í hafnarfirði, gott verkstæði og ef þú ert meðlimur í BMWkrafti færðu 10% afslátt af vinnu og vörum.

Svo mæli ég sérstaklega með Pústverkstæðinu ÁS nóatúni 2, hef reyndar ekki verslað við þá í dálítið langann tíma en þeir tóku nokkra bíla fyrir mig, fyrir nokkrum árum, og ef þú ferð þangað reyndu frekar að tala við unga gaurinn þar, hann hefur aðeins verið að pæla í svona opnun pústum og svona breytingum. Gamli littli karlinn, þótt hann sé fínn þá fussar hann og sveijar fyrir öllu svona pælingum og breytingum, svo eru þeir mjög sanngjarnir í verði, allavega voru það.

Author:  jens [ Tue 12. Feb 2008 21:42 ]
Post subject: 

bimma_frík, ég er með 4 cyl mótor í mínum E30. Ég er með 2.5" frá flækjum og keypti þennan forláta DTM =00=== open flow endakút að utan. Þegar þetta var komið undir var allt of mikill hávaði í bílnum og ég komst ekki í gegnum skoðun 84 db hávaði. Ef þú ætlað að láta smíða costom púst farðu þá til einhvers sem veit hvað hann er að gera.

Author:  Mazi! [ Tue 12. Feb 2008 22:21 ]
Post subject: 

jens wrote:
bimma_frík, ég er með 4 cyl mótor í mínum E30. Ég er með 2.5" frá flækjum og keypti þennan forláta DTM =00=== open flow endakút að utan. Þegar þetta var komið undir var allt of mikill hávaði í bílnum og ég komst ekki í gegnum skoðun 84 db hávaði. Ef þú ætlað að láta smíða costom púst farðu þá til einhvers sem veit hvað hann er að gera.



Hvað ertu með undir bílnum núna ?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/