bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

ABS ljós í mælaborði
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=27299
Page 1 of 1

Author:  Brútus [ Tue 05. Feb 2008 19:38 ]
Post subject:  ABS ljós í mælaborði

Hvað merkir það ef að að ABS gula ljósið í mælaborðinu fer að lýsa tilviljunarkennt.
Þar er að segja þegar að ég er kannski búinn að keyra í svona 5 mín þá fer það allt í einu að lýsa. Slokknar svo aftur kannski. Lýsir svo næst þegar að ég set bílinn í gang og svo kannski lýsir það ekki í viku en fer svo aftur að lýsa upp úr þurru. Ég var farinn að fá á tilfinninguna að þetta hlyti að hafa eitthvað að gera með snjóinn. Keyri bílinn minn þó aldrei í þungu færi.

Hvað á þetta ljósavesen hugsanlega að þýða ?

UPDATE:
ákvað bara að vekja gamla þráðinn í stað þess að búa til nýjan.
Þegar að það fór að hitna og snjórinn fór að minnka þá hvarf þetta ljós í langan tíma.
Ég var búinn að gleyma þessu vandamáli þar til að um daginn að það kviknaði í rigningu. Ég opnaði húddið og reif öll ABS öryggin úr og setti þau aftur í og BINGÓ. ABS ljósið slokknaði. En svo fer það að lýsa aftur þegar að ég er búinn að keyra svona 30 km leið. Það slokknar ekki nema að ég hreyfi við öryggjunum. Ljósið er stunum lengi slökkt en fer alltaf aftur að lýsa eftir nokkra vegalengd í akstri.
Er þetta sambandsleysi í Öryggjaboxinu og hvað væri hægt að gera í því ?
ps.
Ég er búinn að prufa að kaupa ný og ný öryggi og skipta þannig að þau eru ekki að klikka.

Author:  Angelic0- [ Tue 05. Feb 2008 19:40 ]
Post subject: 

faulty abs skynjari eða hjólalegurnar að framan orðnar slappar.... þ.e. rílurnar fyrir skynjarana á legunum :!:

Nema að öxlarnir að aftan séu orðnir slæmir :!:

Author:  Brútus [ Tue 05. Feb 2008 19:44 ]
Post subject: 

Hvar er best að fara með svona í viðgerð ?
Eitthvað verkstæði sem að þið gætum mælt með þar sem að menn gætu áttað sig á svona ?

Author:  Angelic0- [ Tue 05. Feb 2008 19:47 ]
Post subject: 

Mér langar að segja komdu með bílinn til mín og ég skal finna út úr þessu...

en.... ég ætla að benda þér á TB...

Author:  Brútus [ Tue 05. Feb 2008 19:51 ]
Post subject: 

Já. Ég ætla að heyra í þeim. Vona bara að þeir hirði ekki af mér veskið mitt.

Author:  Angelic0- [ Tue 05. Feb 2008 19:52 ]
Post subject: 

Brútus wrote:
Já. Ég ætla að heyra í þeim. Vona bara að þeir hirði ekki af mér veskið mitt.


Stórefa að þeir geri það !

Author:  JonHrafn [ Tue 05. Feb 2008 22:51 ]
Post subject: 

Mig minnir að það kosti 3000kr að láta lesa af bílnum í TB.

Author:  Brútus [ Tue 05. Feb 2008 23:50 ]
Post subject: 

Þakka kærlega Angelic0- og JonHrafn , Heyri í TB mönnum á morgun og fæ þá til að flexa þetta fyrir mig.

Author:  srr [ Wed 06. Feb 2008 00:18 ]
Post subject: 

Brútus wrote:
..Heyri í TB mönnum á morgun og fæ þá til að flexa þetta fyrir mig.

:shock: :shock: :shock:

Er þetta mállýska frá Hnakkistan (Selfoss)?

Author:  Gunnar Hnefill [ Thu 07. Feb 2008 11:14 ]
Post subject: 

srr wrote:
Brútus wrote:
..Heyri í TB mönnum á morgun og fæ þá til að flexa þetta fyrir mig.

:shock: :shock: :shock:

Er þetta mállýska frá Hnakkistan (Selfoss)?
Flexa :roll: flexa gellur ekki brjóstunum :lol:

eða hvað veit ég norðlendingur :wink:

Author:  Brútus [ Fri 01. Aug 2008 02:28 ]
Post subject: 

ákvað bara að vekja gamla þráðinn í stað þess að búa til nýjan.
Þegar að það fór að hitna og snjórinn fór að minnka þá hvarf þetta ljós í langan tíma.
Ég var búinn að gleyma þessu vandamáli þar til að um daginn að það kviknaði í rigningu. Ég opnaði húddið og reif öll ABS öryggin úr og setti þau aftur í og BINGÓ. ABS ljósið slokknaði. En svo fer það að lýsa aftur þegar að ég er búinn að keyra svona 30 km leið. Það slokknar ekki nema að ég hreyfi við öryggjunum. Ljósið er stunum lengi slökkt en fer alltaf aftur að lýsa eftir nokkra vegalengd í akstri.
Er þetta sambandsleysi í Öryggjaboxinu og hvað væri hægt að gera í því ?
ps.
Ég er búinn að prufa að kaupa ný og ný öryggi og skipta þannig að þau eru ekki að klikka.

Author:  bErio [ Fri 01. Aug 2008 05:43 ]
Post subject: 

Kauptu nyjan ABS skynjara
Ekki mjög flókið verk
Kostar sitt en þetta á að laga það

Author:  Lindemann [ Fri 01. Aug 2008 10:15 ]
Post subject: 

þetta er alveg örugglega bara nuddaðar leiðslur í abs skynjarana........ abs skynjararnir sjálfir breytast ekkert við bleytu en ef það er rifa í einangrun á leiðslunum þá kemst raki þar inn og þessvegna kveikir hann abs ljósið frekar í bleytu.

ef þú veist hvaða abs skynjari er að koma með villu, þá geturu náttúrulega skipt um hann og leiðslan í hann fylgir með.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/