Page 1 of 1

M60 höktir

PostPosted: Sun 06. Jan 2008 23:00
by Steinieini
Var að þvo M60 hreyfilinn minn.

Nema hvað nú höktir hann í lausagang.

Þið vitið maður hálf hoppar í sætinu

Áður fyrr vissi maður ekki af honum í gangi.

Hvað sprautaði ég á sem þarf að þurka ? :?

ATH: ég var ekki með háþrýstidælu, bara svona frekar slaka bunu og reyndi að passa slæma staði

PostPosted: Sun 06. Jan 2008 23:04
by gunnar
Settiru hann beint í gang eftir að hafa þvegið?

PostPosted: Sun 06. Jan 2008 23:23
by Steinieini
Já soldið beint

En bara stutt, til að færa hann svo 2 klst bið á meðan bónað og leður græjað og whatnot

PostPosted: Sun 06. Jan 2008 23:24
by bjornvil
Hafa kertin ekki bara blotnað hjá þér?

PostPosted: Sun 06. Jan 2008 23:32
by gunnar
Það hefur raki komist í eitthvað. Ég reyni alltaf þegar ég fer í svona massa þvott að hafa bílinn bara kyrran sem lengst áður en ég færi hann.

Vonandi er þetta ekkert alvarlegt... Leyfðu honum bara að þorna og vonandi hressist hann

PostPosted: Mon 07. Jan 2008 01:34
by Ibzen
Ég var einmitt að þrífa vélarsalinn í bílnum mínum um daginn líka og ég var bara með slöngu, enginn kraftur á vatninu. Ég held að ég hefði nú betur sleppt því. Þegar ég setti bílinn í gang var einhver tussugangur í honum og ég er ekki frá því að einhver smá lykt af brenndu gúmmí hafi einnig komið eftir að ég setti í gang. Jæja allavegana, daginn eftir var ég síðan að keyra og eftir svona 5-10 mín akstur fór bíllinn að missa allan kraft og hegðaði sér mjög undarlega, hann fékk kraftinn síðan aftur en missti hann síðan aftur stuttu seinna. Gerðist þetta nokkrum sinnum. Síðan tók ég eftir því að það komu einhverjar eldglæringar úr pústinu og örlítill reykur með.

Kannast einhver við þetta? Veit einhver hvað var að gerast ofaní húddinu á bílnum mínum þetta kvöld? :)

Bara svo það sé á hreinu þá var þetta M50B20 mótorinn í e36 bílnum mínum :)

PostPosted: Mon 07. Jan 2008 07:17
by Alpina
Þetta er ALÞEKKT í M60,, geta verið skelfilega hvimleiðir við raka

tekur ca 1 dag..

PostPosted: Mon 07. Jan 2008 08:55
by jon mar
er þetta ekki bara vatn sem fer niður í kertagöngin?

Prófa að blása þetta bara með þrýstilofti, eða bíða bara, þetta fer :)

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 21:48
by Steinieini
De Zíben var sett á snúruna, good as new 8)

Image

Glittir í 325 í dvala

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 22:30
by Hlynzi
Ibzen wrote:Ég var einmitt að þrífa vélarsalinn í bílnum mínum um daginn líka og ég var bara með slöngu, enginn kraftur á vatninu. Ég held að ég hefði nú betur sleppt því. Þegar ég setti bílinn í gang var einhver tussugangur í honum og ég er ekki frá því að einhver smá lykt af brenndu gúmmí hafi einnig komið eftir að ég setti í gang. Jæja allavegana, daginn eftir var ég síðan að keyra og eftir svona 5-10 mín akstur fór bíllinn að missa allan kraft og hegðaði sér mjög undarlega, hann fékk kraftinn síðan aftur en missti hann síðan aftur stuttu seinna. Gerðist þetta nokkrum sinnum. Síðan tók ég eftir því að það komu einhverjar eldglæringar úr pústinu og örlítill reykur með.

Kannast einhver við þetta? Veit einhver hvað var að gerast ofaní húddinu á bílnum mínum þetta kvöld? :)

Bara svo það sé á hreinu þá var þetta M50B20 mótorinn í e36 bílnum mínum :)

Ekki ólíklegt að þú hafir bleytt kertalokin.

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 22:33
by Ibzen
Hlynzi wrote:

Nákvæmlega það sem gerðist! :wink:

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 23:03
by Benzari
Vantar alveg "Bílar meðlima" þráð um þessa risaeðlu. :idea:

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 23:09
by Hlynzi
Benzari wrote:Vantar alveg "Bílar meðlima" þráð um þessa risaeðlu. :idea:

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... c&start=15

Hér eru allavegana myndir.

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 23:14
by Benzari
Sjoppaðar til andskotans :twisted: :twisted:

Þessi bíll á alveg skilið að eiga einkahúmorsþráð án *blings*