bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

#$%=(&"#$% frost
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=26408
Page 1 of 4

Author:  zazou [ Mon 24. Dec 2007 03:48 ]
Post subject:  #$%=(&"#$% frost

Ég settist uppí SUV-ið áðan en hurðin vildi ekki lokast. Rúllaði út á bensínstöð og ætlaði að redd'essu með lásaspreyi eða einhv. andskota. Fer út og skelli hurðinni svo þegar ég ætla aftur in vill hurðin ekki opnast sama hvað ég djöflaðist á fjarstýringunni. Takkinn hreyfðist en eins og húnninn gripi ekki í neitt.

Endaði með því að fara inn farþega megin og yfir miðjustokkinn. Farþega hurðin hafði þó bara hálflokast. Rúllaði yfir á aðra dælu (sú fyrsta biluð) og ætlaði sömu leið út, þeas farþega megin en viti menn, hurðin föst. Þurfti að skríða afturí til að komast út!
Ætlaði ekki að þora aftur inn í bílinn en lét mig þó hafa það og keyrði í 20 mínútur með miðstöðina í botni.

Allt eðlilegt eftir það. Keyrði bílinn aftur 7 tímum síðar og allt í góðu.

Hvaða drasl er þetta sem er ekki að virka? Eitthvað sem er tregt og marginal í frosti. Og get ég úðað einhverri drullu á það svo þetta endurtaki sig ekki???

Author:  IngóJP [ Mon 24. Dec 2007 03:56 ]
Post subject: 

lennti í svona með Grand Vitara var bullandi raki inní bílnum inní hurðum og bara allstaðar lét bílinn standa inní skúr allt opið og allt í góðu eftir það

Author:  Tommi Camaro [ Mon 24. Dec 2007 04:06 ]
Post subject: 

bannað að þvó í frosti

Author:  birkire [ Mon 24. Dec 2007 04:40 ]
Post subject: 

Haha þetta frost er farið að bögga mig alvarlega, þarf næstum alltaf að skafa innan á framrúðunni vegna frostsins, þá snjóar inni í bílnum ! Voða kósý.
Hef svo líka lent í því að þær vilji ekki lokast andskotans hurðnirnar.. hvað þá opnast.

Author:  zazou [ Mon 24. Dec 2007 05:37 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
bannað að þvó í frosti

Hver er að þvo? :lol:

Author:  Lindemann [ Mon 24. Dec 2007 11:17 ]
Post subject: 

þetta er algengt í x5.............því miður :? það er eitthvað hægt að smyrja þetta með því að rífa hurðaspjöldin af og svoleiðis bras........bara spurning hvort það endist eitthvað.
Þetta hefur verið vandamál einstaka sinnum í X5 hjá mömmu.

Author:  elli [ Mon 24. Dec 2007 11:50 ]
Post subject: 

E38 bíllinn minn er hrikalega viðkvæmur fyrir frostinu. Maður kemst reyndar alltaf inn en svo á að loka og þá gerist ekkert :twisted: læsinginn nær ekki að smella og hurðin læsist ekki aftur það er heldst ekki lokuð. Er búinn að leita svoldið að lausn á þessu á netinu en hef ekki fundið neitt enn.
Sataníska frost :twisted:

Author:  saemi [ Mon 24. Dec 2007 11:58 ]
Post subject: 

Þetta er krónískt.

Til plasthulsa sem var notað á seinni bílunum sem kemur í veg fyrir að það renni vatn á milli og valdi þessu. Þarf að taka þetta í sundur og laga á eldri bílunum.

Author:  elli [ Mon 24. Dec 2007 12:13 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Þetta er krónískt.

Til plasthulsa sem var notað á seinni bílunum sem kemur í veg fyrir að það renni vatn á milli og valdi þessu. Þarf að taka þetta í sundur og laga á eldri bílunum.

Virkar þetta fyrir þetta E38 problem líka?

Author:  saemi [ Mon 24. Dec 2007 12:19 ]
Post subject: 

Ég veit ekki með það. Veit bara að BMW gerði bragarbót á þessu í X5. ..

Author:  iar [ Mon 24. Dec 2007 12:22 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Ég veit ekki með það. Veit bara að BMW gerði bragarbót á þessu í X5. ..

----------------------
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5 & 518i, E34 "M5", E39 M5, E34 5??, E53 4.6is


:naughty:

Author:  Aron Fridrik [ Mon 24. Dec 2007 13:29 ]
Post subject: 

Sæmi hvernig væri nú að þú myndir henda í einn bílar meðlima þráð.. update þetta aðeins :D

Author:  saemi [ Mon 24. Dec 2007 16:49 ]
Post subject: 

:whistle:

Author:  Geirinn [ Mon 24. Dec 2007 16:51 ]
Post subject: 

Lendi í svona frostmálum á Golfinum mínum, get oft ekki lokað.. og það hefur komið fyrir að hurðin opnast á ferð!

Það sem hefur virkað fyrir mig er annaðhvort að vera þrjóskur á að loka eða hita bílinn mjög vel áður en ég legg af stað í frosti, eflaust engin önnur leið nema að leyfa bílnum að vera inni yfir nótt til að losa hann alveg við raka.

Author:  Steini B [ Mon 24. Dec 2007 17:13 ]
Post subject: 

Minn er nú bara nánast alltaf inni og sleppur við þetta frost... :)




Enda ekki þorandi að geima svona flak úti í svona veðri.... :lol:

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/