bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vantar ráðleggingar um E36 með M52B28 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=25970 |
Page 1 of 1 |
Author: | JOGA [ Fri 30. Nov 2007 20:03 ] |
Post subject: | Vantar ráðleggingar um E36 með M52B28 |
Sælir, Ég er búinn að fá jákvæðar undirtektir við skipti á þessum bíl: http://www.pistonheads.co.uk/sales/273248.htm Þegar hann sendi mér póst með frekar jákvæðu svari varð ég eitthvað skrítinn ![]() Ég held ég geti skipt slétt á mínum Audi sem er 1997 ekinn 93þús mílur. Hann er svipað mikils virði þó hann sé nýrri og minna keyrður. Málið er að 328i bíllinn er ekki með þjónustubók en hann er búinn að skipta um marga slithluti sem er alltaf gott. Hvaða upplýsingar hafið þið um þessa bíla/mótora. Mig langar rosalega í BMW aftur og þessi finnst mér virkilega reffilegur. Langar samt ekki að vera alveg blindur svo mig langar að vega og meta kosti/galla áður en ég tek ákvörðun um að halda áfram með þetta. Edit: Felgurnar einar og sér slaga langleiðina upp í það sem ég borgaði fyrir Audinn þannig að maður ætti kannski ekki að hafa áhyggjur ![]() |
Author: | gstuning [ Fri 30. Nov 2007 20:08 ] |
Post subject: | |
Geturru farið að skoða hann? Það er mjög dubious að hann er ekki með log book. |
Author: | JOGA [ Fri 30. Nov 2007 20:23 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Geturru farið að skoða hann?
Það er mjög dubious að hann er ekki með log book. Já þetta með þjónustubókina pirrar mig. Svo var ég að taka eftir því að það er ekkert tekið fram um topplúgu. Gerði e-h ráð fyrir að hún væri þarna. Sendi honum póst um það ![]() Ég ætla að reyna að fá hann til að keyra hálfa leið á móti mér á morgun. Hann er ekki mjög langt í burtu, ca. 100km. Hvað ætti ég helst að skoða í ljósi þess að hann er ekki með þjónustubók og svona? |
Author: | gstuning [ Fri 30. Nov 2007 20:41 ] |
Post subject: | |
Að allt sem hann segir að sé nýtt sé í raun nýtt Að allt sé eins og hann segir. Málið er að það verður svo leiðinlegt fyrir þig að selja seinna ef það vantar log book. Hvað með E36 M3 ? Þeir eru bara að fara gefins þessa daganna í UK, 350-500k |
Author: | JOGA [ Fri 30. Nov 2007 20:53 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Að allt sem hann segir að sé nýtt sé í raun nýtt
Að allt sé eins og hann segir. Málið er að það verður svo leiðinlegt fyrir þig að selja seinna ef það vantar log book. Hvað með E36 M3 ? Þeir eru bara að fara gefins þessa daganna í UK, 350-500k Ég hef leitað að E36 M3 en til að fá góðan bíl þá þarf ég að bæta við ca. 1000-2000 pundum sem ég gæti svo sem pínt mig í en svo bætast við BULL tryggingar og þá fer þetta aðeins úr mínum "verðramma". Fékk quote frá mínu tryggingafélagi og það tvöfaldaðist tryggingin þó að Audinn sé í tryggingaflokk 17. 328i er í tryggingaflokk 16, eyðir engu, er ódýrari í rekstri o.frv. (Ég að reyna að telja mér trú um að mér langi meira í hann en M3 ![]() Kaupi mér bókað M bíl þegar ég er búinn í námi. Verð að reyna að vera passlega skynsamur þangað til. |
Author: | gunnar [ Fri 30. Nov 2007 23:29 ] |
Post subject: | |
Djöfull er vélasalurinn alveg BLING,,, sé hálf eftir að hafa ekki látið schmiedmann setja orginal síuboxið í minn.... Ánægður með þig að þú sért að skoða E36 328 Touring,,, og þessi er bara flottur.. En eins og nafni bendir á,,, myndi skoða bílinn extra vel útaf log book.. |
Author: | Steini B [ Sun 02. Dec 2007 02:32 ] |
Post subject: | |
Tja, ég er sjálfur vanur því að það sé ekki þjónustubók í mínum bmwum, held að það hafi bara 2 af 7 verið með þjónustubækur... Þetta getur alveg týnst eins og margt annað... Ég væri alveg aftur til í E36 328, mjög skemmtilegir bílar... ![]() |
Author: | Alpina [ Sun 02. Dec 2007 18:41 ] |
Post subject: | |
Hver er staðan í þessu ferli |
Author: | JOGA [ Sun 02. Dec 2007 23:05 ] |
Post subject: | |
Sælir, Ég ákvað að salta það að fara að skoða bílinn núna. Hefði tekið mig í það minnsta heilan dag ef ég hefði keypt bílinn og ég er að fara í 7 prófa törn í vikunni og hef ekki efni á því að missa úr dag. Ég hafði samband við hann aftur ætla að fara að skoða hann ca. 14/15.des ef hann verður ekki seldur. Mér finnst frekar ólíklegt að hann verði seldur þar sem að það eru fáir sem kaupa bíla hérna úti rétt fyrir jól. Annars fékk ég það staðfest að hann er með lúgu ![]() Felgurnar eru ný "professionally refurbished" og það fylgja með orginal felgurnar á la la dekkjum. Ég spurði hvort hann ætti orginal ljósin sem hann á því miður ekki. Ég myndi þá selja þessi á Ebay eða eitthvað og kaupa mér orginal til að byrja með. Finnst þessi BARA ljót ![]() En vonandi verður hann ekki seldur svo ég geti reynt að vera smá BE ![]() |
Author: | JOGA [ Sat 02. Feb 2008 22:10 ] |
Post subject: | |
Langaði að "update-a" þetta. Ég hringdi í gaurinn eftir prófinn og þá kom í ljós að hann hafði nuddað hann eitthvað smá og selt til gaurs sem gerir við bíla fyrir klink. Ég er alltaf að leita að bílum núna og viti menn fyrir nokkrum dögum dúkkaði hann aftur upp á Pistonheads. Fjölskyldan fór því í ferðalag í dag ca. 130 km hvora leið til að kíkja á bílinn. Var mjög spenntur þar sem þessi gaur var líka alveg til í skipti ... Þegar komið var á staðinn kom MJÖG fljótt í ljós að þessi bíll er algjör haugur. Hann er mjög fjarska fallegur en þegar komið er nær sjást ryð bólur á öllum hurðum, hann var á sitt hvorum dekkjunum og svo var rifið bílstjórasætið. Þegar ég prófaði kom í ljós að stýrisdælan er farin að kvarta, hann var ekki sérlega ljúfur í gíra o.s.frv. Sem sagt ekki bíllinn fyrir mig ![]() Þá er það bara að halda áfram að leita... Ég er alltaf að sjá 323i hér nálægt en langar í 328i. Hefur einhver reynslu af báðum og getur sagt mér hvort það sé mikill munur á þeim? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |