Page 1 of 2
Bensín

Posted:
Wed 19. Sep 2007 16:35
by hjaltib
jæja ég er með 628csi 81' og málið er að hann fær ekki bensín,
það er búið að setja bensín á hann til að útiloka það, svo þá tók ég slönguna sem liggur á milli dælu og síu og prufaði að láta dæluna ganga en ekkert kemur úr dælunni samt heyrist í henni suð og hún eitthvað að snúast, ég prufaði að halda puttanum fyrir til að fá þrýsting þá frusaðist smá bensín ásamt lofti þegar ég sleppti, er búinn að prufa að taka flotholtið upp úr tanknum og það er ekkert stíflað og sýnist vera í góðu lagi og sekkur oní bensín þegar maður setur það oní tankinn.
Gæti svo verið að dælan sé biluð þótt það heyrist eitthvað í henni? Eða er hún lengi að ná þrýstingi þar sem nátúrulega ekkert bensín var í leiðslunum bara loft?
og eitt enn ég náði honum í gang í hálfa mínótu og svo allt í einu drap hann á sér og fór ekki aftur í gang, eru einhverjir spekkingar hérna sem hafa lent í þessu eða vita hvað er að?
Kveðja Hjalti.

Posted:
Wed 19. Sep 2007 16:36
by Axel Jóhann
Stíflaðar leiðslurnar?

Posted:
Wed 19. Sep 2007 16:40
by hjaltib
Axel Jóhann wrote:Stíflaðar leiðslurnar?
búið að athuga það, þær eru frekar nýjar líka.

Posted:
Wed 19. Sep 2007 16:52
by demi
Dælan getur verið biluð, og sérstaklega ef það heyrast miklir skruðningar í henni, þá eru seglarnir öruggleg dottnir af rotornum í dælunni.
Annars er langauðveldast að taka dæluna í sundur


Posted:
Wed 19. Sep 2007 17:01
by saemi
demi wrote:Dælan getur verið biluð, og sérstaklega ef það heyrast miklir skruðningar í henni, þá eru seglarnir öruggleg dottnir af rotornum í dælunni.
Annars er langauðveldast að taka dæluna í sundur

Nei það er sko ekki auðvelt að taka svona dælu í sundur. Þetta er eitt stykki, ekki lítið mál að taka þetta í sundur.
Ég myndi giska á að dælan væri biluð. Það á að heyrast lágt suð í henni og hún á að dæla alveg á fullu strax.
Ertu búinn að athuga hvort það kemur beint úr dælunni undir bílnum, eða fram í húddi? Ef þú ert ekki búinn að athuga með beint úr dælunni þá gæti þetta verið sían sem er tengd eftir dæluna, hún gæti verið stífluð.

Posted:
Wed 19. Sep 2007 17:11
by hjaltib
ég tók leiðsluna úr sambandi á milli dælu og síu þar kom ekkert úr sían er ekki stífluð, þannig eins og ég held þá er þetta líklegast dælan, þá er bara spurning hvar maður fær hana, er hægt að nota dælu úr 730/e32 bíl?

Posted:
Wed 19. Sep 2007 17:38
by saemi
Nei, það eru allt öðruvísi dælur í þeim bílum. Það er E28 fimma í vökuportinu sem þú getur notað dæluna úr. Ég veit reyndar ekki hvort þú kemst að henni því hann er neðstur. En ef þeir lyfta honum upp fyrir þig gætir þú náð henni.
Er nokkuð stíflað frá tankinum og að dælunni? Ég hef lent í því þegar ég tók einu sinni tankinn undan bílnum.

Posted:
Wed 19. Sep 2007 17:56
by Tommi Camaro
blástu í slönguna í huddinu þá sérðu með besta móti hvort það er stífla í tankinum

Posted:
Thu 20. Sep 2007 00:02
by hjaltib
ja þarf að athuga slönguna frá tanki og að dælu, en flotholtið er ekki stiflað eða þar sem bensínið fer úr tanknum og í slönguna, en er þessi fimma enn í vöku hvenær sást hún síðast þar?
Annars ef einhver á dælu handa mér þá má hann senda pm á mig.

Posted:
Thu 20. Sep 2007 09:21
by saemi
Bíllinn var þar á föstudaginn síðasta.

Posted:
Thu 20. Sep 2007 09:29
by Geysir
Fimman er þarna ennþá, skrýtið að henni skuli hafa verið hent, virtist vera ansi heilleg.

Posted:
Thu 20. Sep 2007 14:23
by hjaltib
hann er kominn í gang þakka svörin.

Posted:
Thu 20. Sep 2007 14:27
by gunnar
Þýðir ekkert að segja svona,,,, hvað var að !


Posted:
Thu 20. Sep 2007 14:36
by hjaltib
gunnar wrote:Þýðir ekkert að segja svona,,,, hvað var að !

slangan sem var á milli tanks og dælu nuddaðist í og var hún öll í sprungum og þar af leiðandi dróg loft inn
en viftan hjá mér er laus hvernig herðir maður uppá hana?

Posted:
Thu 20. Sep 2007 14:48
by saemi
Viftan... ertu að tala um viftuspaðan við vatnskassan? Ef svo er þá á hann að vera laus þangað til vélin hitnar, þá á hún að festast.