bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Víbringur í M5
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=24344
Page 1 of 2

Author:  Siggi H [ Sat 15. Sep 2007 20:19 ]
Post subject:  Víbringur í M5

sælir félagar..

núna er ég með bílinn niðrá verkstæði að ditta að einu og öðru, en aðalvandamálið er víbringur sem er í bílnum. hann lýsir sér þannig að allur bíllinn hristist! mesti víbringurinn er í kringum 2000rpm, ég er búinn að prufa að þenja bílinn stopp líka og það er það sama.. enþá víbringur! svo steig ég á kúplinguna og þandi bílinn og það var enþá það sama. maður finnur mjög vel fyrir þessum víbring..

svoldið erfitt að greina hvaðan hann kemur en manni finnst einsog hann komi undan bílnum, þetta eru víst ekki gírkassapúðarnir því það var búið að skipta um þá.. og mjög ólíklegt að þetta tengist drifinu eitthvað þar sem víbringurinn er til staðar þó bíllinn standi kyrr og er þaninn.. einnig ekki um gírkassann að ræða held ég þar sem ég er búinn að prufa að standa á kúplingunni einsog ég sagði!

mig sjálfum grunar.. að þetta gæti verið mótorpúði? en hefði nú haldið að maður mætti nú alveg búast við meiri víbring ef að mótorpúði væri farinn.

það sem mig vantar er upplýsingar og svona smá leiðsögn um það hvað ég ætti að skoða helst sem gæti valdið þessu??

vinur minn sem er bifvélavirki "heldur" að þetta gæti eitthvað tengst mótornum sjálfum sem hristir allan bílinn..

endilega þeir sem hafa lent í þessu eða kannist við eitthvað sem fittar við lýsinguna hérna koma með góð ráð handa mér.

Takk Takk

Author:  Hannsi [ Sat 15. Sep 2007 20:32 ]
Post subject: 

held að það geti líka skift máli hvor mótorpúðinn sé farinn uppá styrkleika víbringsins.

ef það er hægra meginn til dæmis þá er mótorinn að leggjast á mótorpúðan ef vinstra meginn þá lyftist hann upp ;)

Author:  Siggi H [ Sat 15. Sep 2007 20:33 ]
Post subject: 

málið er að ef við erum með húddið opið og þenjum hann þá sjáum við mótorinn varla hreyfast nema bara það sem ég myndi telja eðlilegt að hann hreyfist, en hinsvegar víbrar mótorinn líka með ef þetta er eitthvað annað.

Author:  BMW_Owner [ Sat 15. Sep 2007 21:23 ]
Post subject: 

ég hef einu sinni lent í svipuðu og ég held að það hafi stafað frá kúplingunni því að þegar ég var ný búinn að skipta um hana þá kom þessi víbríngur,hann vara bara í kringum 1500rpm og 2000rpm annarstaðar kom hann ekki.ég veit ekki af hverju hann stafaði en svona fyrir þig þá getur þetta tengst kúplingunni.Hoppar hann eitthvað þegar þú ert að taka á stað "titrar svona einkennilega þegar þú ert að snuðahann á stað?"

Author:  Angelic0- [ Sat 15. Sep 2007 21:39 ]
Post subject: 

ef að mótorpúðarnir eru í lagi þá ætla ég að giska á að sveifarásinn gæti verið eitthvað "bjagaður"...

Gerðist hjá félaga mínum með Nissan Sunny... héldum fyrst að þetta væri mótorpúði en svo kom í ljós að sveifarásinn var bara "fokked"...

En gæti líka verið bjöguð kúplingspressa eða swinghjólið messed líka...

Author:  Siggi H [ Sat 15. Sep 2007 21:40 ]
Post subject: 

nei hann hoppar ekkert eða neitt svoleiðis, hinsvegar er þessi víbringur alltaf.. en bara dofnar þegar maður er farinn að gefa í.. en á venjulegum akstri þá finnst hann alltaf, þó mest í kringum 2000rpm, manni finnst einsog allur bíllinn hristist út frá þessu ( hvað það er sem er að valda þessu )


þessi víbringur er SAMT þótt maður standi á kúplingunni og þenur hann.. þannig að gírkassinn og það getur varla komið mikið nálægt þessu þá.

Author:  Angelic0- [ Sat 15. Sep 2007 21:45 ]
Post subject: 

Siggi G wrote:
nei hann hoppar ekkert eða neitt svoleiðis, hinsvegar er þessi víbringur alltaf.. en bara dofnar þegar maður er farinn að gefa í.. en á venjulegum akstri þá finnst hann alltaf, þó mest í kringum 2000rpm, manni finnst einsog allur bíllinn hristist út frá þessu ( hvað það er sem er að valda þessu )


þessi víbringur er SAMT þótt maður standi á kúplingunni og þenur hann.. þannig að gírkassinn og það getur varla komið mikið nálægt þessu þá.


Giska á að pressan sé að losna eða hún sé orðin slöpp...

Author:  Siggi H [ Sun 16. Sep 2007 03:51 ]
Post subject: 

ekkert illa meint Viktor, en ég held að ég þiggji frekar ráð frá þeim sem þekkja betur til í þessum bílum... því að breyta einhverjum BMW í "M5" er aldrei það sama og orginal M5 bíll, en þakka samt ráðið og athuga það.

Author:  Eggert [ Sun 16. Sep 2007 11:01 ]
Post subject: 

Hvaða máli skiptir þó hann sé að gera vélarswap í E39? Held hann þekki nú bara betur til en margir hérna...

Author:  jon mar [ Sun 16. Sep 2007 11:03 ]
Post subject: 

er svona "harmonic balancer" á sveifarásnum í m5?

Author:  Angelic0- [ Sun 16. Sep 2007 13:41 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
er svona "harmonic balancer" á sveifarásnum í m5?


Það var einmitt dæmið sem að var farið í SR20DE mótornum sem að ég vitnaði í :!:

Spurning hvort að það er keisið... en mér grunar samt að þetta sé kúplingspressan, það olli víbring í E39 523i hjá mér...

Og Siggi, ætli ég sé ekki búinn að stúdera E39 meir en margir hérna inni :!:

Og það að converta venjulegum E39 í E39 M5 kemur þessu ekkert við, ég hefði í raun haldið að það gæfi mér plús í kladdann frekar en hitt :!:

Author:  bimmer [ Sun 16. Sep 2007 17:24 ]
Post subject: 

Siggi G wrote:
ekkert illa meint Viktor, en ég held að ég þiggji frekar ráð frá þeim sem þekkja betur til í þessum bílum... því að breyta einhverjum BMW í "M5" er aldrei það sama og orginal M5 bíll, en þakka samt ráðið og athuga það.


Ekki ögra Viktori - þú verður bara nr. 15 :lol:

Author:  Siggi H [ Sun 16. Sep 2007 19:50 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
er svona "harmonic balancer" á sveifarásnum í m5?

ég bara veit það ekki

Author:  jon mar [ Sun 16. Sep 2007 20:28 ]
Post subject: 

er ekki svoleiðis bara boltað á sveifarásinn ásamt reimskífunni?

Hef heyrt um að svoleiðis hafi farið í bílum og orsakað svona víbring.

Sem betur fer hefur aldrei reynt á það í mínum bílum þó :D

Author:  Stanky [ Sun 16. Sep 2007 20:41 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Siggi G wrote:
ekkert illa meint Viktor, en ég held að ég þiggji frekar ráð frá þeim sem þekkja betur til í þessum bílum... því að breyta einhverjum BMW í "M5" er aldrei það sama og orginal M5 bíll, en þakka samt ráðið og athuga það.


Ekki ögra Viktori - þú verður bara nr. 15 :lol:


Tók smá tíma að fatta þetta... en ..... hahahha :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/