Þessu tengt þá segir bíllinn núna að það séu 13000 km í næsta service. Er það bara næsta smur eða eitthvað meira service? Sá sem flutti bílinn inn setti hann í smur úti í byrjun apríl og þá var tölvan núllstillt. Er í lagi fyrir mig að treysta því bara sem bíllinn segir eða væri gáfulegra að láta bara smyrja hann núna þegar hann fer inn til TB út af spíssamálum í vikunni? Finnst það bara hálf tilgangslaust ef það er hvort eð er kominn tími á Inspection II og ég þarf að fara að panta tíma hjá B&L á næstu vikum.
Þetta er enginn smá business að eiga BMW, maður þarf sífellt að vera að pæla í einhverju


