Ljósabúnaðarvandamál e30

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Ljósabúnaðarvandamál e30

Postby flatbeat » Mon 10. Sep 2007 00:04

Hefur einhver lent í þessu áður?

Fór í dag og tengdi geislaspilara í bílinn. Var svolítið vesen í fyrstu þar sem rafmagnskerfið er voðalega skrýtið í bílnum, en það var leyst með því að leiða einfaldlega nýjar hátalarasnúrur. Síðan var battery tengt, ground og memory og bíllinn settur í gang og allt virkar.

Síðan seinna um kvöldið þegar það fer að dimma aðeins þá tek ég eftir því að mælaborðsljósið virkaði ekki. Ekki var ég sáttur með það en gerði bara ráð fyrir að þetta væri eitthvað smotterí. Síðan ennþá seinna þá tók ég eftir því að aðalljósin virkuðu ekki. Eina sem logaði var stöðuljósið vinstra meginn. Sama hvað ég fiktaði í dagljósasveifinni þá bara fóru aðalljósin ekki í gang.

Það sem mér finnst virkilega skrýtið er að þegar ég svissa bara á bílnum, þá loga aðalljósin fínt (þó ekki mælaborðsljósið) en svona 1-2sek eftir að bíllinn fer í gang, þá slokknar á þeim og eina sem eftir logar er þetta stöðuljós vinstra meginn. Háuljósin virka vel, ásamt öllum ljósum aftan á bílnum, og þess vegna spyr ég: Hefur einhver lent í þessu áður og/eða veit lausn á þessu?

Væri líka til í að vita hvort ég gæti hafa gert eitthvað rangt þegar ég tengdi spilarann eða að þetta sé tilviljunarkennt, því ég sé ekkert að því hvernig ég tengdi spilarann.

Er líka búinn að athuga öll öryggi og eru þau öll heil.

Hjálp? :cry:
Ragnar Halldórsson.

M. Benz 320CE '93 - My precious
BMW E30 316i '90 - Bíter
M. Benz 260e '87 - Seldur
Nissan Sunny :( - Pressaður :)
flatbeat
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Tue 24. Jul 2007 01:00

Postby flatbeat » Mon 10. Sep 2007 18:24

TTT

Þetta virkaði í einhvern tíma í dag þegar ég var að keyra, en datt út aftur þegar ég prufaði að setja stöðuljósin á og síðan aftur aðalljósin.
Ragnar Halldórsson.

M. Benz 320CE '93 - My precious
BMW E30 316i '90 - Bíter
M. Benz 260e '87 - Seldur
Nissan Sunny :( - Pressaður :)
flatbeat
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Tue 24. Jul 2007 01:00

Postby Angelic0- » Mon 10. Sep 2007 18:47

ég giska á að þú hafir klippt og splæst :!:

Hefði verið lang best að fá OEM-ISO converter :!:

Ef að þú hefur tök á að setja orginal tengið í mæli ég með að fara í 12 volt / aukaraf og fá svona OEM-ISO breytistykki :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests