bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Losa hurðarspjald í E46 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=24153 |
Page 1 of 1 |
Author: | thisman [ Fri 07. Sep 2007 08:45 ] |
Post subject: | Losa hurðarspjald í E46 |
Veit einhver hvert best er að leita til að losa frá hurðarspjaldið í E46 til að komast að hátalaraleiðslunum? Hægri framhátalarnir í hurðinni detta út annað slagið og það nægir að banka örlítið í stærri hátalarann og þá hrökkva þeir í gang. Þannig væntanlega væri nóg að fara yfir kaplana og tryggja að þeir séu kyrfilega í sambandi. Það eru þrjár ástæður fyrir því að ég fer ekki í þetta sjálfur: Þekkingarleysi, aðstöðuleysi og sú staðreynd að það er loftpúði í hurðinni sem ég vil sem minnst eiga við. Þannig ef einhver veit um einhvern sem væri til í að kippa þessu í liðinn fyrir mig fyrir sanngjarna greiðslu þá endilega látið vita. Ef ekki þá er væntanlega best fyrir mig að láta þá hjá TB skoða þetta í leiðinni þar sem hann á tíma hjá þeim í næstu viku út af spíssamálum. Eru þeir nokkra stund að redda svona æfingum? Nenni bara ómögulega að panta tíma hjá umboði fyrir svona smotterý en ég vil bara hafa græjuna í 100% lagi. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |