bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bíllinn rásar í hjólförum og öðrum mishæðum. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=23432 |
Page 1 of 2 |
Author: | JonHrafn [ Sun 29. Jul 2007 18:17 ] |
Post subject: | Bíllinn rásar í hjólförum og öðrum mishæðum. |
Já, nýi gripurinn lætur eins og hálfviti í hjólförum og öðrum mishæðum. Dekkin eru í mjög góð ástandi. Michelin pilot sport sumardekk. 225/45/17 að framan, 245/40/17 að aftan. Hvað gæti verið að valda þessu fyrst dekkin er í fínu lagi? |
Author: | Einarsss [ Sun 29. Jul 2007 18:21 ] |
Post subject: | |
Óvanur að keyra low profile dekk (maður bara spyr) annars gæti mér dottið í hug spacerar sem gera bílinn breiðari og henti þar af leiðandi verr í hjólför. |
Author: | JonHrafn [ Sun 29. Jul 2007 18:23 ] |
Post subject: | |
hinn 320 bíllinn minn var á 225/45/17 .. helvíti mikill munur á aksturseiginleikum fyrir 2cm að aftan, og það eru ekki spacerar á honum. |
Author: | ///M [ Sun 29. Jul 2007 18:24 ] |
Post subject: | |
kíkja í hjólastillingu? |
Author: | JonHrafn [ Sun 29. Jul 2007 18:27 ] |
Post subject: | |
Já, mér sýnist að step1 hjá mér sé að koma honum á lyftu og ath spyrnufóðringar,,, síðan hjólastilling. |
Author: | slapi [ Sun 29. Jul 2007 20:44 ] |
Post subject: | |
E46 vill rosalega rása í hjólförum og leita í þau , sérstaklega þegar þetta er komið á 17" felgur og ég spurði Bjarka í B&L út í þetta og hann sagði að hann hafi munað eftir þessu í nánast öllum E46 sem hann hefur keyrt þannig ða ég tek hann trúarlegan í því. Það er mjög auðvelt að ATH hvort aftari spyrnufóðringin sé orðin slök í þessum bíl , hefur hann í smá beygju (5-10° á stýri) á sirka 60-80 km/h og taka eitt létt en ákveðið högg á bremsurnar og þá vill bremsuhöggið leiða upp í stýri , skrítin aðferð en auðveld leið að tékka á þessu í þessum bílum. En það er mjög líklegt að þetta sé eðlilegt í þínum bíl , en alltaf gott að vera viss. |
Author: | JonHrafn [ Sun 29. Jul 2007 20:56 ] |
Post subject: | |
já miðað við keyrslu þá ætti þetta nú að vera í lagi, en ég hendi honum á lyftu á morgun og tékk á fóðringum. |
Author: | Schulii [ Sun 29. Jul 2007 21:52 ] |
Post subject: | |
E46 touring bílinn sem ég átti var mjög slæmur í hjólförum. Hann var á 17" felgum. |
Author: | jon mar [ Sun 29. Jul 2007 23:36 ] |
Post subject: | |
hvað gerir það að verkum að þetta gerist? Bara forvitinn, svona þar sem manni finnst þetta stórundarleg hegðun í nýjum bílum. Er virkilega ekki hægt að losna við þetta með hjólastillingu eða einhverju? ![]() |
Author: | Svessi [ Mon 30. Jul 2007 03:10 ] |
Post subject: | |
Það allra, allra fyrsta sem ég myndi gera er að tjékka á loftþrýstingi í dekkjunum. Og hafðu auðvitað í huga að ráðlagður loftþrýstingur í dekkjum er mismunandi eftir þyngd ökutækisins, þar á meðal hvort þú ekur honum oftast einn eða ert með hann yfirleitt fullann af farþegum og farangri. Einnig þarf ekki endilega að vera sami loftþrýstingur í frammdekkjum og afturdekkjum þótt sama stærð og tegund sé undir öllum bílnum Þið verðið að fyrirgefa mér það að ég skrifi þetta eins og þetta sé fyrir einhvern algjörann imba, það eru bara svo margir sem halda að 26pund sé það sem eigi að vera í öllum dekkjum á öllum bílum. Ég hef jafnvel séð menn sem hafa pumpað í venjuleg 14" dekk þangað til pumpan náði ekki að pumpa meira og það voru 60-70 pund í hverju dekki. Svo eru aðrir sem keyra og keyra og hugsa aldrei neitt um þetta. Svo mæli ég með þessum nýju digital loftmælum sem komnir eru á flestar N1 stöðvar og EGÓ stöðvar (held ég sé að fara með rétt mál). Stillir bara með + og - takka hvað þú villt hafa mikla pressu í pundum í dekkjunum, setur slönguna á, skjárinn sýnir þér þá hvað er mikil pressa í dekkinu og tekur þá loft úr eða pumpar í hvort sem við á og pípir svo þegar loftþrýsingurinn sem þú baðst um er kominn. Mjög þægilegt og nákvæmt, mun þægilegra og nákvæmara heldur en að vera með svona hand-loftmæli. Það er svona hálft ár síðan ég fór að nota þessa digital mæla og í dag er ég farinn að fara sirka einu sinni í viku, því bíllinn er miklu þægilegri í akstri og hann er alveg með hátt í 0,5 líternum minna í eyðslu á 100 heldur en hann var með. Þetta er auðvitað bara ódýrasta ráðið, svo getur þetta verið svo margt. Eitthvað í bílnum, dekkjtegundin, dekkjarstærðin á þessum felgum og ýmislegt fleira. |
Author: | íbbi_ [ Mon 30. Jul 2007 10:13 ] |
Post subject: | |
ég veit ekki hvort það býr að baki svörum þínum að þú skulir vera blaðamaður, en mikið skuggalega eru svörin þín alltaf löng! |
Author: | ///M [ Mon 30. Jul 2007 11:14 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: ég veit ekki hvort það býr að baki svörum þínum að þú skulir vera blaðamaður, en mikið skuggalega eru svörin þín alltaf löng!
já ég nenni aldrei að lesa svona langa pósta ![]() ![]() |
Author: | bjahja [ Mon 30. Jul 2007 11:25 ] |
Post subject: | |
Hjólastilling lagaði þetta helling á mínum |
Author: | iar [ Mon 30. Jul 2007 13:02 ] |
Post subject: | |
///M wrote: íbbi_ wrote: ég veit ekki hvort það býr að baki svörum þínum að þú skulir vera blaðamaður, en mikið skuggalega eru svörin þín alltaf löng! já ég nenni aldrei að lesa svona langa pósta ![]() ![]() Þú ert líka meira svona þriggja orða maður. ![]() |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 04. Aug 2007 03:24 ] |
Post subject: | |
þessar digital pumpur eru fínar á meðan þær eru í topp lagi en um leið og slangan er orði léleg þá verða þær mjög ónákvæmar eins og t.d. á egó sem er hjá löður breiðholti, svo bila þær alltaf í frostinu. þeir eru svo latir að halda þeim við hjá egó |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |