saemi wrote:
Það vantar þarna svolítið að þú segir hvað sé vandamálið.
Mér heyrist að það sé lélegur gangur og bíllinn gangi alltof ríkur.
Það sem getur verið að er (það sem ég man í fljótu bragði):
ECU
ICV
AFM
Hitaskynjari á thermostatshúsinu
Opinn kaldræsispíss (bilaður, lekur)
Bilaður bensínþrýstingsjafnari
Ég geri ráð fyrir að það sé ekki neinn súrefnisskynjari við þessa vél. Sveifarásskynjarinn er ábyggilega ekki vandamálið ef bíllinn gengur sæmilega, það er meira on-off dæmi.
Fyrst grunar mig AFM eða hitaskynjarann. Númer 12 og 3 að athuga það. Einnig er möguleiki að það sé vacuum leki, en samt.... það ætti ekki að valda of ríkum gangi.
Alveg rétt hjá þér að gangurinn er lélegur og bíllinn gengur alltof ríkur.
Þetta er ekki vaccum leki, búið að tékka það.
Ég lét setja súrefnisskynjara í pústið á bílnum en það breytti engu, spurning hvort hann sé vitlaust tengur þá eða?? á ekki örugglega að koma breyting á gangnum ef súrefnisskynjari er tengdur við?
Þarf að kíkja á þetta með hitaskynjarann, kaldræsispíss og bensínþrýstingsjafnarann.. vitið þið ensku orðin yfir þetta fyrir mig??
Hvað með ECU??