Page 1 of 1

Kominn í lag

PostPosted: Thu 14. Aug 2003 21:42
by bjahja
Jæja, ég var að sækja bílinn uppí B&L áðan, hann er kominn í lag :D
En eins og mig grunaði þá var þetta vatnsdælan, reyndar þurfti líka að skipta um vatnslásinn og vatnsláshúsið. Þetta var samtals 37 þæusund peningar, sem mér finnst svo sem allt í lagi.
En hann benti mér á það að viftukúplinginn væri að fara að syngja sitt síðasta og maður fer að skipta um hana bráðlega.
Enn eins og er er bílinn minn í fínasta lagi, veiiiiiiii :wink:

PostPosted: Thu 14. Aug 2003 21:51
by Alpina
undursamleg tilfinning að vera sáttur við sit eigið ökutæki!!!!!!!!!! :D :D

Sv.H

PostPosted: Thu 14. Aug 2003 22:33
by hlynurst
Var einmitt að setja í nýja miðstöðvartölvu og nýtt ljós þannig að ég er líka í sæluhimni eins og þú Bjarni. :lol:

Gaman af þessu... síðan set ég hann í skoðun og vil fá enga athugasemd!

PostPosted: Thu 14. Aug 2003 22:51
by bebecar
EKKI FARA í Garðabæinn ef þú vilt ekki athugasemd!

Gott að heyra að bílarnir eru í standi hjá ykkur - var þetta ekki bara vel sloppið fyrir allt vatsnstússið?

PostPosted: Fri 15. Aug 2003 02:05
by íbbi_
bebecar.. ef bíllin er góður og sleppur í gegn þá verður hann helmingi ánægðari fytrir vikið..