bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E36 325 startvesen...?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=23074
Page 1 of 1

Author:  GudmundurGeir [ Mon 09. Jul 2007 14:53 ]
Post subject:  E36 325 startvesen...?

Datt í hug að spyrja ykkur hér um þetta áður en ég færi að reyna finna út hvað gæti verið að...
En þetta er 325 bimmi, E36. Nú hefur hann tekið uppá því að vera erfiður í gang. Hann startar og startar en neitar að fara í gang, samt tekur hann smá púst öðru hvoru og lætur eins og hann sé aðeins að ranka við sér.
Svo þegar hann hefur loksing farið í gang þá er hann alveg eðlilegur, fullt afl og allt bara eðlilegt.

Eitthvað sem þið þekkið kannski? Svona til að spara mér hausverkinn að finna útúr þessu? :)

Eitt annað, þetta er reyndar ekki minn bíll þannig ég er ekkert farinn að skoða neitt ennþá, en það er komið smá slit í hjólalegu að framan. Er ekki hægt að herða eitthvað uppá henni? Er það nokkuð mál?

Author:  Hlynzi [ Mon 09. Jul 2007 23:49 ]
Post subject: 

Bensínvandamál ?
(sía, relay eða dælan sjálf)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/