bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vökvastýri í E30 með M52B28
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=22952
Page 1 of 1

Author:  gunnar [ Sat 30. Jun 2007 14:57 ]
Post subject:  Vökvastýri í E30 með M52B28

Jæja ég þarf að fara reyna troða vökvastýrinu í bílinn hjá mér.

Ég er með mest allt sem ég þarf í það held ég nema steering rack.(stýrismaskína??)

Er með

Alternator (þeir sögðu að hinn passaði ekki með þessu)
Dæluna sjálfa
Framhlutann sem er með trissunni á. Risa stykki sem virðist vera með einhverju forðabúri ( http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=11&fg=30 )
Réttu reimina fyrir þetta

Ég þarf auðvitað að skipta um steering rackið, en það sem ég er að pæla, nota ég rack úr E30 eða ætti maður að fara í E36 steering rack eins og sumir eru að setja í hjá sér til að minnka snúninga á stýrinu.

Er einhvað sem ég er að gleyma inn í þessu ?

Endilega komið með einhver komment á þetta, nenni ekki að standa í því að vera í miðri aðgerð og mig vantar einhverja hluti, óþolandi
:lol:

Author:  Einarsss [ Sat 30. Jun 2007 21:19 ]
Post subject: 

Ég myndi taka e36 dæmið. Get samt ekkert sagt um hvort það sé auðveldara eða erfiðara að tengja við það.

Author:  gunnar [ Sat 30. Jun 2007 21:22 ]
Post subject: 

Á R3vlimited ( http://www.r3vlimited.com/board/showthread.php?t=66247 ) stendur að maður geti notað úr hvaða bíl sem er, en ætli sé einhver munur á þeim? þe.a..s hvort það sé úr z3, m3 eða bara 316/318 úr vöku ?

Author:  moog [ Sat 30. Jun 2007 21:28 ]
Post subject: 

Best og ódýrast að smella sér niðrí vöku og redda þessu þar,,, hlýtur að ná að möndla þetta úr 316i/318i bíl... Veit að það eru nokkrir E36 þar núna... Rukka varla mikið fyrir þetta hjá Vöku.

Author:  gunnar [ Sat 30. Jun 2007 21:31 ]
Post subject: 

Bílarnir þar eru samt oft í svo miklu hassi. Ofan á hvor öðrum og læti.. Yrði hálf erfitt að tjakka svoleiðis pakka upp :lol:

Author:  moog [ Sat 30. Jun 2007 21:55 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Bílarnir þar eru samt oft í svo miklu hassi. Ofan á hvor öðrum og læti.. Yrði hálf erfitt að tjakka svoleiðis pakka upp :lol:


Rétt, en ég hef alveg fengið þá þjónustu hjá þeim að þeir hafa fært bíla til (sem voru aðgengilegir) og komið þeim fyrir þannig að maður gat farið að rífa það sem maður vantaði.

Author:  gunnar [ Sat 30. Jun 2007 22:00 ]
Post subject: 

Já ég kíki á þá eftir helgi. Er það ekki rétt hjá mér að með E36 rackinu að þá fara snúningarnir á stýrinu úr 4 yfir í ca 3 ?

Author:  Robbi318is [ Sun 01. Jul 2007 02:05 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Já ég kíki á þá eftir helgi. Er það ekki rétt hjá mér að með E36 rackinu að þá fara snúningarnir á stýrinu úr 4 yfir í ca 3 ?


Það er rétt

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/