bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Víbringur í stýri og skrítið bank -> e39??
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=22748
Page 1 of 1

Author:  hauksi [ Wed 20. Jun 2007 16:28 ]
Post subject:  Víbringur í stýri og skrítið bank -> e39??

Sælir snillingar,

Ég er með 540 e39 og þegar ég er að rúnta á 80 þá byrjar stýrið að víbra.

Ég er 90% viss um að þetta er ekki dekkin þar sem þau voru balanceruð og ég er búinn að rótera þeim.

Hafið þið einhverja hugmynd um hvað þetta getur verið?

Svo er líka skrítið bank sem kemur bara stundum og mér finnst eins og það komi bílstjóra megin að framan. Þetta er frekar hátt bank. -> getur þetta verið spyrnufóðring?

Author:  moog [ Wed 20. Jun 2007 16:45 ]
Post subject: 

Mjög líklega spyrnan hjá þér sem er farin.

Author:  Jonni s [ Wed 20. Jun 2007 19:15 ]
Post subject: 

Ég mundi láta ath ballanseringarnar. Þær eiga það til að skjótast af, sérstaklega þessar límdu.

Author:  JonFreyr [ Thu 05. Jul 2007 17:41 ]
Post subject:  .

Skoða spyrnufóðringar.....hvernig hagar hann sér þegar þú bremsar á þessum hraða? Ef hann titrar þegar þú bremsar að þá þarftu að athuga fóðringar....

Author:  hauksi [ Thu 05. Jul 2007 19:15 ]
Post subject: 

já ég ætlaði að athuga fóðringarnar um helgina. Það skrítna var að ég fór í Húsafell um helgina og þá fann ég engan víbring í stýri og ég er ekki að finna þennan víbring alltaf hann alltaf.

Væri ekki alltaf víbringur (á ákveðnum hraða) ef þetta væri dekkin?

Author:  Jónas [ Thu 05. Jul 2007 20:22 ]
Post subject: 

Vitlaus ballancering lýsir sér sem titring í stýri EFTIR c.a 60-70 km/h

Vírslitið dekk myndi vera skjálfti í stýri, alltaf..

Author:  hauksi [ Thu 05. Jul 2007 21:05 ]
Post subject: 

Jónas wrote:
Vitlaus ballancering lýsir sér sem titring í stýri EFTIR c.a 60-70 km/h

Vírslitið dekk myndi vera skjálfti í stýri, alltaf..


já einmitt, ég var að reyna að segja það sama.

Titringurinn í er bara stundum en ekki alltaf þegar ég er að keyra á 80 km/h.
Ef það væri vitlaus balancering þá ætti titringurinn alltaf að koma þegar ég væri að keyra á svipuðum hraða, eða í kringum 80 km/h er það ekki?

Author:  Schulii [ Fri 06. Jul 2007 08:09 ]
Post subject: 

Ég var að lenda í því á E34 540i bílnum sem ég átti að það kom titringur í stýrið. Það gat samt verið mjög misjafnt hvernig það hagaði sér. Stundum var enginn titringur en síðan kom hann og magnaðist bara við að keyra. Þetta gat verið á misjöfnum hraða. Ég lét að sjálfsögðu balancera allt dótið en ekkert breyttist. T.b. tók hann inn og skoðaði en þeir sáu ekkert. Svo var það ekki fyrr en ég fór með hann aftur til þeirra og bað þá að skoða hann mjög vel að þá kom í ljós að það voru farnar fóðringar. Það var skipt um fóðringar að framan, mótorpúða og gírkassafóðringar (aftari mótorpúða). Eftir það var bíllinn eins og nýr í akstri.

Author:  Danni [ Fri 06. Jul 2007 11:36 ]
Post subject: 

Minn var svona, E39 540 líka. Lét skipta um báðar spyrnufóðringar og það lagði þetta að mestu leiti. Skipti svo um felgur og þá lagaðist þetta alveg. Voru víst skakkar sem ég var með undir.

Author:  hauksi [ Fri 06. Jul 2007 20:51 ]
Post subject: 

jæja, ég fór undir bílinn áðan og það er væntanlega ekki eðlilegt að ég geti fært spyrnufóðringuna c.a. 2 -3 cm eða hvað? En hún var ekkert rifin eða slitin að sjá.

Núna er bara að panta nýjar fóðringar. Er þetta nokkuð svo dýrt hjá umboðinu? :lol:

Author:  JonHrafn [ Sat 07. Jul 2007 21:34 ]
Post subject: 

keypti í e46 um daginn hjá bogl.. 20kjell fyrir báðar spyrnufóðringarnar að framan, mjög fljótlegt að skipta um því maður fær allt unitið, ekki bara fóðringuna.

Author:  Danni [ Sun 08. Jul 2007 00:49 ]
Post subject: 

Kostaði í minn 9800 báðu megin og það voru bara fóðringarnar. Þurfti að láta B&L skipta um og það var einhver 18þús kall

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/