bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Furðulegt hljóð í E30
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=22474
Page 1 of 2

Author:  Stanky [ Sun 03. Jun 2007 15:09 ]
Post subject:  Furðulegt hljóð í E30

Var að keyra í gær á svona 110+ og þá kom hljóð eins og eitthvað var að skellast úr eða uppí eitthvað.

Eftir það heyrðist svona hljóð eins og ég væri að draga eitthvað eftir götunni. Ég hélt að þetta væri pústið, en svo var ekki.

Svo heyrist líka svona tikk hljóð, því hraðar sem ég ek því tíðara verður hljóðið.

Hljóðið kemur frá afturhjóli farþegameginn.

Það virðist ekkert vera athugavert við bílinn þegar einhver stendur fyrir aftan eða hliðina á honum á meðan ég keyri. Hljóðið heyrist líka miklu minna úti og mjög hátt inn í bíl.

Hefur einhver klú?



kv,
haukur

Author:  maxel [ Sun 03. Jun 2007 15:14 ]
Post subject: 

getur þetta ekki verið bremasan að aftan? nema þú sért með diska. eða ég fæ bara það klú því þú segir fragasst eftir götunni :/

Author:  Angelic0- [ Sun 03. Jun 2007 15:15 ]
Post subject: 

Væntanlega ertu að ræða um E30 325 bílinn..

Hjólalega farin ?

Ef að þetta er bíll með skálum þá dettur mér í hug að það hafi eitthvað inni í skálinni brotnað !

Author:  Stanky [ Sun 03. Jun 2007 15:17 ]
Post subject: 

Þetta er 325i - diskar að aftan.

Ef þetta er hjólalegan þá býst ég við því að maður mætti svona helst ekki keyra bílinn? Right?

Author:  Angelic0- [ Sun 03. Jun 2007 15:45 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Þetta er 325i - diskar að aftan.

Ef þetta er hjólalegan þá býst ég við því að maður mætti svona helst ekki keyra bílinn? Right?


Það getur verið óþæginlegt ef að þetta festist allt á einhverri ferð...

Mæli með því að þú komir þér hið snarasta í skúr og kíkir á stöffið ;)

Author:  Stanky [ Sun 03. Jun 2007 15:50 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Stanky wrote:
Þetta er 325i - diskar að aftan.

Ef þetta er hjólalegan þá býst ég við því að maður mætti svona helst ekki keyra bílinn? Right?


Það getur verið óþæginlegt ef að þetta festist allt á einhverri ferð...

Mæli með því að þú komir þér hið snarasta í skúr og kíkir á stöffið ;)


Já...

Er með bílskúr.... þarf bara að rutta til fyrir honum og kíkja á þetta...

þarf að redda mér bíl þá fyrir morgundaginn.

Author:  Steinieini [ Mon 04. Jun 2007 01:00 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Angelic0- wrote:
Stanky wrote:
Þetta er 325i - diskar að aftan.

Ef þetta er hjólalegan þá býst ég við því að maður mætti svona helst ekki keyra bílinn? Right?


Það getur verið óþæginlegt ef að þetta festist allt á einhverri ferð...

Mæli með því að þú komir þér hið snarasta í skúr og kíkir á stöffið ;)


Já...

Er með bílskúr.... þarf bara að rutta til fyrir honum og kíkja á þetta...

þarf að redda mér bíl þá fyrir morgundaginn.




Hljómar NÁKVÆMLEGA eins og hjá mér um daginn, þegar ég opnaði diskinn þá fékk ég gormasettið bara í lófann ss. handbremsa.

Author:  Stanky [ Mon 04. Jun 2007 23:27 ]
Post subject: 

Okay well....

Reif diskinn af... það var mega maus... þurfti að slaka á handbremsunni inní bíl til þess að rífa þetta af. Loksins kom þetta af.

Sá ekkert athugavert þarna...

Snerí NAF'inu(nav?) (kallast það ekki það?) og við hvern hring heyrði ég "tik, tik, tik"... hljóðið kom út frá því, en ekki drifinu eða í átt að því.

Afsakið, kann ekki alveg fagmannlegu heitin á öllu þessu dóti.

Fer öxullinn frá drifinu inní hjólabúnaðinn eða er öxulluinn bara öðru meginn? (yes yes, stupid question).

Og síðasta spurning. Hversu stórann topp þarf maður til þess að losa þenann mega stóra bolta sem er í NAF (NAV)'inu?

kv,
haukur

Author:  gunnar [ Mon 04. Jun 2007 23:30 ]
Post subject: 

Til þess að losa öxullinn úr hjólabúnaðnum er 30 mm toppur.

Öxlarnir eru tveir og fara úr drifinu í sitthvort hjól. Það eru rillur á endanum á öxlunum sem fara inn í nafið og róin er til að halda því föstu.

Er ekki bara farin lega hjá þér ?

Author:  Lindemann [ Mon 04. Jun 2007 23:33 ]
Post subject: 

ef hjólalegan er ónýt ættiru annaðhvort að finna slag í hjólinu(gott að tjakka bílinn upp og fara með spennujárn undir hjólið og jugga því til) eða heyra hljóð þegar þú snýrð hjólinu(hljóð eins og þurr lega, kann ekki að lýsa því betur :lol: )

Author:  Stanky [ Mon 04. Jun 2007 23:58 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Til þess að losa öxullinn úr hjólabúnaðnum er 30 mm toppur.

Öxlarnir eru tveir og fara úr drifinu í sitthvort hjól. Það eru rillur á endanum á öxlunum sem fara inn í nafið og róin er til að halda því föstu.

Er ekki bara farin lega hjá þér ?


Takk fyrir þetta.

Þarf ég ekki að losa öxulinn þá báðu meginn þ.e.a.s í drifinu og hjólabúnaðinum?

Sést alveg með berum augum hvort lega sé farin eða ekki?



kv,
haukur

edit: Lindemann: Það sem ég gerði var að ég reif dekkið af - þegar ég snéri dekkinu sjálfu þá fannst mér ég ekki heyra nóg, þannig að ég reif þetta allt eins og ég gat í sundur. Bresmudælan af, bracketið af, diskurinn af og snéri svo NAF'inu og þá heyrði ég svona tikk hljóð og svona stöðugt skrjáf hljóð. Svo prufaði ég að snúa því hinumegin líka og þá heyrði ég líka svona "skrjáf" hljóð en ekkert tikk.

Author:  íbbi_ [ Tue 05. Jun 2007 01:13 ]
Post subject: 

hljómar samt líkt upphengjuni.. hefði skotið á það ef þú værir ekki búin að finna út úr þessu

Author:  Alpina [ Tue 05. Jun 2007 07:36 ]
Post subject: 

Þetta hljómar ...ALLS EKKI .. eins og lega sé farinn,,
það hljóð er eins og stöðugur niður,,

Hef ,aldrei, heyrt að lega fari svona,,
en upphengjuna hefði ég einnig skotið á ,, eða að handbremsu-búnaðurinn hefði losnað, þeas inni í skálinni á disknum

Author:  íbbi_ [ Tue 05. Jun 2007 10:16 ]
Post subject: 

snýst skaptið þegar þú snýrð öxlinum?

Author:  gstuning [ Tue 05. Jun 2007 10:26 ]
Post subject: 

settu í handbremsu þegar þú ert búinn að tjakka upp að aftann
og settu í 1gír, og rólega reyndu að gefa átak á aftur dekkin,

ef öxull er farinn heyrist það glögglega eða í drifinu,

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/