bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Motor swaap
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=22344
Page 1 of 1

Author:  stjani88 [ Mon 28. May 2007 16:22 ]
Post subject:  Motor swaap

'Eg er búinn að vera að velta mikið fyrir mér. Ég á Bmw e34 turing sem er bara 520 sem sagt allveg hræ mátt laus. Ég er að velta fyrir mér hve mikið mál það er að setja í hann 3l eða 4l mótor úr öðrum e34 það er vél og kassi og hve r mikið í viðbót???

Author:  Eggert [ Mon 28. May 2007 16:33 ]
Post subject: 

Það er ekkert grín að fara í motorswap, en það stærsta sem þú getur sett í þennan bíl með sæmilegum máta er M30B35..., sem er 3.5 lítra mótorinn sem kom í 535i og 735i.

Þú þarft kassa/skiptingu, mótor og allt sem honum fylgir, vatnskassa, mótorfestingar, víraloom, og líklega annað drifskapt. Þetta er ekkert djók að fara útí þetta...

Author:  elli [ Mon 28. May 2007 16:35 ]
Post subject: 

Ég held að þetta snúist um hvort þér finnist það vera peningana virði að standa í þessu. Skora á þig að athuga frekar kaup á öðrum bíl 540 touring (ef þú vilt þannig) eða einhvern E34 með stærri vél. En ef þig vantar hobby þá er allt hægt.

Author:  Eggert [ Mon 28. May 2007 16:36 ]
Post subject: 

Síðan getur þú auðvitað sett í mótor af sömu tegund og þinn, það er miklu minna mál. En getur verið erfitt að finna mótor... sérstaklega ef þú ert með M50. Held það liggi ekkert of mikið af M50B25 mótorum í bílskúrum bæjarins... en það ætti að vera auðveldara að finna M20B25.

M20 er í bílnum þínum ef hann er '90 eða eldri, en M50 ef hann er yngri en það. Getur líka séð þetta á hestaflatölu bílsins hjá þér, M20 er 129 hestöfl en M50 150hp.

Author:  Alpina [ Mon 28. May 2007 19:41 ]
Post subject: 

Eggert wrote:
Síðan getur þú auðvitað sett í mótor af sömu tegund og þinn, það er miklu minna mál. En getur verið erfitt að finna mótor... sérstaklega ef þú ert með M50. Held það liggi ekkert of mikið af M50B25 mótorum í bílskúrum bæjarins... en það ætti að vera auðveldara að finna M20B25.

M20 er í bílnum þínum ef hann er '90 eða eldri, en M50 ef hann er yngri en það. Getur líka séð þetta á hestaflatölu bílsins hjá þér, M20 er 129 hestöfl en M50 150hp.



Rólegur eggert,,

TOURING er ekki til M20 :owned:

Author:  Lindemann [ Tue 29. May 2007 00:02 ]
Post subject: 

getur líka farið í M60 swap..... þá er verið að tala um alvöru vél.

Author:  Eggert [ Tue 29. May 2007 00:20 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Rólegur eggert,,

TOURING er ekki til M20 :owned:


:oops:

...kemur...

Author:  moog [ Tue 29. May 2007 00:20 ]
Post subject: 

Eins og Eggert nefndi, þá væri einfaldasta leiðin að fara í M50B25 sem er í 525i bíl. færð við það auka 42 hestöfl og getur notað sama gírkassa/skiptingu sem þú ert með fyrir, en þetta er samt ekki plug-n-play nema fyrir reynda menn.

Væri skynsamlegast að íhuga frekar að skipta bílnum út fyrir kraftmeiri bíl, einfaldara og myndi eflaust á endanum vera mun ódýrara fyrir þig.

Author:  Eggert [ Tue 29. May 2007 00:24 ]
Post subject: 

moog wrote:
Eins og Eggert nefndi, þá væri einfaldasta leiðin að fara í M50B25 sem er í 525i bíl. færð við það auka 42 hestöfl og getur notað sama gírkassa/skiptingu sem þú ert með fyrir, en þetta er samt ekki plug-n-play nema fyrir reynda menn.

Væri skynsamlegast að íhuga frekar að skipta bílnum út fyrir kraftmeiri bíl, einfaldara og myndi eflaust á endanum vera mun ódýrara fyrir þig.


Ekki bara missir hann daily driverinn sinn í X tíma fyrir þetta swap, þá þarf hann líka að borga eitthvað fyrir swappið, og svo góða summu fyrir mótorinn.... ef honum tekst að finna einhvern falan í ágætis standi. Eina vitið að láta bara þennan bíl uppí annan kraftmeiri.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/