bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
föst hurð í e-36 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=22158 |
Page 1 of 1 |
Author: | Elnino [ Fri 18. May 2007 12:19 ] |
Post subject: | föst hurð í e-36 |
Jæja þá allt í einu tók farþega hurðinn uppá því hjá mér að opnast ekki. Ég get sett "pinnann" upp og niður en hún er alltaf læst. Hvað gæti orsakað þetta? kveðja Elli |
Author: | _Halli_ [ Fri 18. May 2007 15:38 ] |
Post subject: | |
Ég lenti í þessu með bílstjórahurðina hjá mér um daginn. Það var eitthvað slit í læsingunni sem varð til þess að lásinn fór ekki af þótt að maður tæki úr lás. Ég byrjaði á því að reyna mikið magn af WD-40 en það gerði ekki mikið meira en að skilja eftir mikinn keim í bílnum. Svo tók ég hurðarspjaldið af, og tróð mér inní hurðina, og komst að því að það er lítið gat undir læsingunni sem ég tróð einhverjum andskotanum inní, minnir að það hafi verið skrúfjárn. Og eftir smá tíma af poti og pirring, þá ýtti ég á eitthvað járn innan í læsingunni sem opnaði dyrnar. VOILA Tók reyndar læsinguna úr hinni hurðinni til að sjá þetta betur, mæli með að þú gerir það ef þú ert farinn að eyða óeðlilega miklum tíma í að leita að þessu gati. Og áður en þú ferð að gera þetta allt, tékkaðu hvort járnið sem tengir pinnann við læsinguna brotnaði nokkuð eða datt úr sambandi ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |