Page 1 of 1

Hlaða / gefastart á e39

PostPosted: Sun 29. Apr 2007 23:28
by arnorp
Sælir
Ég er að spá núna er bíllinn rafmagnslaus útá plani og ég þarf að færa hann, og ég kemst ekki í skottið vegna rafmagnsleysi :?.

Og þetta thingy sem er merkt + battery í húddinu er það ætlað til að starta bílnum eða hlaða á rafgeyminn?
Og ef svo er væri ekki alveg nauðsynlegt fyrir mig að aftengja á pólunum á rafgeyminum? (en þá væri náttúrulega engin tenging við rafgeyminn döö?)

Image

Svo kannski auðveldari leið er einhver leið fyrir mig að opna skottlokið án
þess að skemma það, virkar enganveginn fyrir mig að snúa lyklinum í
cylendernum og ýta á takkann til að opna.

PostPosted: Sun 29. Apr 2007 23:58
by jon mar
þetta er póll sem er ætlaður til að ná inn rafmagni án þess að þurfa að fara í geyminn. Reddar þér svo bara jörð annar staðar í húddinu á beru járni og þú ættir að geta sett í gang eða opnað það sem þér sýnist.


Bara svona almennt gefa start dæmi. Getur alveg notað annann bíl til að hlaða inná.

Þetta er jú bara bíll og einfaldur í sjálfu sér :D

PostPosted: Mon 30. Apr 2007 00:26
by ///MR HUNG
Þú átt að getað opnað skottið með lyklinum þótt hann sé dauður.
Svo er mínus póllinn líklega á öðrum demparaströttinum minnir mig.

PostPosted: Mon 30. Apr 2007 07:59
by arnorp
þakka ykkur fyrir !