Page 1 of 2

e39 SSK spurningar!

PostPosted: Wed 11. Apr 2007 19:39
by arnorp
Sælir núna hefur sjálfskiptingin á bílnum hjá mér verið alveg í ruglinu,
situr í drive og er alveg eðlilegur rétt á meðan hann er kaldur en vill svo
detta í failsafe þegar hann er orðinn heitur.

Ég fór með bílinn uppí B&L til að láta ath. með þetta og þeir gera það og
prufa að bæta olíu á skiptinguna og skola útur henni en engu virtist það
breyta og sögðu mér að hægt væri að ath með hvort hægt væri að gera
við þetta en þá væri áætlaður kostnaður 300-500 þúsund en lágmark
rukkað um 300 þúsund þó ekkert sé hægt að gera við hana. Þau bjóða
mér uppgerða skiptingu á 800 þúsund. og einhvað í kringum milljón
kallinn komin í.

Svo nú er ég að spá í hvort ég geti ekki náð verðinu einhvað niður með
því að finna uppgerða sjálfskiptinu í útlandinu og flytja hana inn sjálfur.


Ég býst nú við því en þá vantar mér að vita eftir hverju ég á að leita, er
einhver aðili eða fyrirtæki úti sem sérhæfir sig og eða hefur gott orðspor
af sér þarna úti sem ég gæti verslað af og einhver bent mér á heimasíðu
eða símanúmer?

Svo þetta er s.s. í bíl 535 e39 árgerð 98.
Er þetta samskonar skipting og er í einhverjum öðrum bíl?


Ég veit að hljóma einsog hálviti en það væri fínt ef fólk gæti gefið mér
einhver ráð um hvern andskotann ég ætti að gera í stöðunni því þetta er
fkn dýrt!

PostPosted: Wed 11. Apr 2007 19:43
by arnorp
Getur það passa að þetta sé s.s. módelnúmerið á sjálfskiptinguna?
A5S440Z

PostPosted: Wed 11. Apr 2007 21:21
by Alpina
Ef vitlaus dekkja stærð er á einhverju hjólanna þá fer bíllinn í LIMP-MODE

PostPosted: Wed 11. Apr 2007 22:11
by arnorp
okay, en því miður þá virðist þetta liggja í sjálfskiptingunni sjálfri að sögn B&L :x

PostPosted: Wed 11. Apr 2007 22:45
by JOGA
Þessir virðast selja skiptingar:

http://data.bmrparts.com/bmwparts/1412.html

Svo er spurning hvort það sé hægt að setja bsk í?
Gæti verið að bíllinn sé enn of nýr til að það sé peningalega hagkvæmt og hvort það sé gerlegt yfirleitt?

Og svo hvort þú hafir á annað borð áhuga á því :wink:

PostPosted: Wed 11. Apr 2007 23:32
by Tommi Camaro
er þetta v8 bíll eða l6 ?
p.s.
búin að finna þetta út
RMFD AUTOMATIC TRANSMISSION EH A5S 440Z - TA 1 01/1997 til 09/1998 part númer 24001423191
ath hvað Tb getur gert fyrir þig síðan er ég með einn í huga og ég skal senda þér hann í pm

PostPosted: Wed 11. Apr 2007 23:34
by Angelic0-
E39, 535... = V8

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 00:24
by Bandit79
Er þetta ekki M62B35 V8 ? er það þá ekki 5HP-24 sjálfskipting ? Ef svo er þá get ég komið þér í samband við góða aðila úti í DK .. eru með 2 notaðar.. 1 í B+ og 1 í A++ klassa ástandi (sem er ágætt og mjög gott) .. sú fyrri á 5625,- DKK m/vsk og sú seinni er vist úr nýjum bíl sem hafði aðra galla skiptingin á að vera í lagi 12.500,- DKK m/vsk sem er nokkuð vel sloppið!

Sú fyrri :
1058-000-017
00435579
5 HP-24
1-423-190

https://www.koed.dk/2.5.asp?kbnummer=10 ... &soegeord=

Sú seinni :
0121608
1058-000-016
1-423-192

https://www.koed.dk/2.5.asp?kbnummer=10 ... &soegeord=

veit ekki hvort þetta er rétt hjá mér en þessar eru komnar úr 535i (04/97) M62 og 540i (04/97) M62

Endilega leiðrétta ef ég hef rangt fyrir mér

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 10:31
by Geirinn
Bandit79 wrote:Er þetta ekki M62B35 V8 ? er það þá ekki 5HP-24 sjálfskipting ? Ef svo er þá get ég komið þér í samband við góða aðila úti í DK .. eru með 2 notaðar.. 1 í B+ og 1 í A++ klassa ástandi (sem er ágætt og mjög gott) .. sú fyrri á 5625,- DKK m/vsk og sú seinni er vist úr nýjum bíl sem hafði aðra galla skiptingin á að vera í lagi 12.500,- DKK m/vsk sem er nokkuð vel sloppið!

Sú fyrri :
1058-000-017
00435579
5 HP-24
1-423-190

https://www.koed.dk/2.5.asp?kbnummer=10 ... &soegeord=

Sú seinni :
0121608
1058-000-016
1-423-192

https://www.koed.dk/2.5.asp?kbnummer=10 ... &soegeord=

veit ekki hvort þetta er rétt hjá mér en þessar eru komnar úr 535i (04/97) M62 og 540i (04/97) M62

Endilega leiðrétta ef ég hef rangt fyrir mér


Ef þetta eru réttar upplýsingar, þ.e. réttar skiptingar... þá ert þú eflaust búinn að bjarga manninum MJÖG vel
:clap:

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 10:36
by íbbi_
mundu bara að það skiptir öllu máli hvort þetta er steptronic eða ekki, það eru gjörólíkir kassar

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 12:25
by Bandit79
íbbi_ wrote:mundu bara að það skiptir öllu máli hvort þetta er steptronic eða ekki, það eru gjörólíkir kassar


Já .. sendi honum EP svo ég geti fengið VIN nr. .. hringi í DK og tékka á þessu ef hann vill.

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 14:02
by Angelic0-
íbbi_ wrote:mundu bara að það skiptir öllu máli hvort þetta er steptronic eða ekki, það eru gjörólíkir kassar


Ef að húsið er heilt af skiptingunni hans, þá er allt bara fært yfir...

Linnet færði allt innanúr skiptingu á 525i (E34) yfir í skiptingu úr 523i (E39) og það virkar fínt enn þann dag í dag!

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 14:03
by íbbi_
96 kemur tölvustýrði kassin með steptronic og flr, hann og gamli eru alveg tvennt ólíkt, ég garvaði mikið í þessu þegar ég var að útvega skiptingu í 96 E38,

á tímabili fást þeir með báðum skiptingunum

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 17:04
by Schulii
Bíddu nú við.. eru ekki allir ssk E39 eftir 2002 steptronic??

PostPosted: Thu 12. Apr 2007 17:05
by Omar
Bandit79 wrote:
íbbi_ wrote:mundu bara að það skiptir öllu máli hvort þetta er steptronic eða ekki, það eru gjörólíkir kassar


Já .. sendi honum EP svo ég geti fengið VIN nr. .. hringi í DK og tékka á þessu ef hann vill.


Talandi um hjálpsemi maður vá! :clap: