bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

sjálfskiptingarvandræði í E34
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=21093
Page 1 of 1

Author:  Ásinn [ Sat 24. Mar 2007 20:20 ]
Post subject:  sjálfskiptingarvandræði í E34

Er í vandræðum með skiptinguna í E34 540. Hann fer afturábak í neutral, og festist í drive þegar hann er kaldur. Þegar hann hitnar er svo enn fyrirstaða í drive en þegar hann skiptir sér upp þá er allt í lagi þ.e. efri gírarnir virka vel. Inn á milli er hann svo allveg í lagi.

Ég er búinn að láta skipta um olíu og síu en heyrði einhverstaðar að þetta hefði eitthvað með ventlaboxið og bakkventilinn að gera. Er einhver hér sem kannast við vandamálið og veit hvert best er að fara til að láta athuga þetta.

Author:  Angelic0- [ Sat 24. Mar 2007 22:09 ]
Post subject: 

get ready to bring out the big bucks !!!!

Author:  Bandit79 [ Sun 25. Mar 2007 16:53 ]
Post subject: 

5hp18 skipting ?

Author:  Steinieini [ Sun 25. Mar 2007 17:16 ]
Post subject: 

M10 skipting gengur aldrei með M60 er það ?

en ef svo er þá á ég svoleiðis handa þér...

Author:  Alpina [ Sun 25. Mar 2007 17:31 ]
Post subject: 

Bandit79 wrote:
5hp18 skipting ?


Þessi skipting er í M50B25 og M60B30 (((annað hús )))

Author:  Bandit79 [ Sun 25. Mar 2007 21:26 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Bandit79 wrote:
5hp18 skipting ?


Þessi skipting er í M50B25 og M60B30 (((annað hús )))


ok .. þá veit ég það :)

Author:  Aron Fridrik [ Sun 25. Mar 2007 23:31 ]
Post subject: 

á ekki að vera lífstíðarolía á þessu ?

Author:  Mace [ Sun 25. Mar 2007 23:52 ]
Post subject: 

lífstíðarolía er nú eitthvað sem er varla til... allar olíur missa smureiginleika og skemmast á endanum

Author:  Hannsi [ Mon 26. Mar 2007 00:01 ]
Post subject: 

Mace wrote:
lífstíðarolía er nú eitthvað sem er varla til... allar olíur missa smureiginleika og skemmast á endanum

það veit hann alveg ;)

Það sem hann er að meina er að það er spes olía ekki eins og venjuleg ssk vökvi ;)

Author:  Mace [ Mon 26. Mar 2007 00:11 ]
Post subject: 

hehe já, meinar... Spáði ekki í það.. Man do I feel stupid :lol: :oops:

Author:  aronjarl [ Mon 26. Mar 2007 00:34 ]
Post subject: 

grunar ventlabox. það er að fara soldið í þessum skiptingum.

TB gætu átt til notað.


kveðja..

Author:  Lindemann [ Mon 26. Mar 2007 18:09 ]
Post subject: 

Mace wrote:
lífstíðarolía er nú eitthvað sem er varla til... allar olíur missa smureiginleika og skemmast á endanum


sumar skiptingar eru samt með olíu sem á að duga skiptinguna.

Author:  hlynurst [ Mon 26. Mar 2007 18:25 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
sumar skiptingar eru samt með olíu sem á að duga skiptinguna.


Fannst frekar skondið að lesa þetta þar sem allar olíur endast líftíma skiptingarinn... bara mismunandi hversu lengi þær endast ef ekki er skipt um olíu á þeim. :)

En ég skil alveg hvað þú ert að segja.

Author:  Lindemann [ Mon 26. Mar 2007 18:46 ]
Post subject: 

ég átti nú ekki við það :lol:

venjuleg ssk olía er náttúrulega löngu búin að missa alla eiginleika sína þegar er búið að nota hana kannski 200þús km. þessi lífstíðarolía á að endast það.

T.d. grand looser 120 er með svona. Þá er enginn áfyllitappi eða kvarði og það á ekki að skipta um olíu á skiptingunni. Það er bara gert ef eitthvað kemur fyrir skiptinguna.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/