Page 1 of 1

Rafgeymaljósa - Bíllinn fer ekki í gang.

PostPosted: Thu 22. Feb 2007 11:19
by arnorp
Sælaaar, í gær á leið minni heim kom upp rafgeyma ljósið í mælaborðinu
hjá mér en þegar það kom var ég uþb 2 mínútum frá heimili mínu, þegar
ég hef lagt í stæðið þá drep ég á bílnum og prufa svo að starta honum
aftur en ekki fer bíllinn í gang.

Ég geri mér grein fyrir því að öllum líkindum sé hann hættur að hlaða
inná hann en hann reynir ekki einu sinni að snúa vélinni.
Svo ef ég svissa alveg á honum og hlustað er ofan í húddið á leiðinni þá
heyrist þetta svaka hátíðni ýýýýl.

Getur verið að startarinn sé farinn?
Má ég prufa að gefa honum start ? og spurning sem ég varla þori að spyrja að er það gert á + og - pólunum á vélinni

Og þetta er s.s. e39, 535 98 árgerð.

PostPosted: Thu 22. Feb 2007 11:24
by Einarsss
Rafgeymirinn er bara 99% tómur og fær startarinn ekki nægt afl til að reyna snúa.

PostPosted: Thu 22. Feb 2007 11:49
by jens
Gefðu bílnum start, það á að vera í góðu lagi. Bíllinn er örugglega hættu að hlaða, ef þú átt mæli ( AVO ) þá áttu að fá ca. 14 volt DC þegar þú mælir á milli pólana á rafgeyminum, en bíllinn verður að vera í gangi.