Page 1 of 1
OILSERVICE

Posted:
Fri 18. Jul 2003 22:09
by Alpina
Jæja boys
Var í B&L um daginn og var að láta bílinn í oliuþjónustu..............
7.5 L ULTRON+Sia +1 timi i vinnu laun((( sem er bara í lagi))
14.000+.$#)(/&%$#"!
er þetta raunhæft eða er ég bara ekki að nálgast nútímann
Sv.H

Posted:
Sat 19. Jul 2003 01:28
by Kull
Já, olía er orðin ansi dýr þessa dagana, sérstaklega þegar maður þarf 7-8L af henni. Mig minnir að ég hafi borgað um 12 þús fyrir síðustu olíuskipti hjá Shell stöðinni við laugarveg, en það var að vísu með 1.5L af olíu aukalega til áfyllingar.
Við þyrftum að athuga með að flytja inn tunnu af góðri olíu bara


Posted:
Sat 19. Jul 2003 01:56
by Schulii
er ekki einhver hérna sem þekkir Bush.. hann á nóg þessa dagana

Posted:
Sat 19. Jul 2003 21:38
by Benzari
1.tími fyrir smurningu + aðra hluti sem checkað er á er bara rugl.

Posted:
Mon 21. Jul 2003 10:16
by bebecar
Ég held að þetta sé ekki mjög fjarri lagi...
Ég var að borga þetta 12 þúsund fyrir olíu, síu og loftsíu á M5 á Laugaveginum.
En hvernig er það, fékkstu ekki afslátt út á klúbbskírteinið?

Posted:
Mon 21. Jul 2003 10:34
by ValliP
Jæja þá er tímabært að taka þátt í þessum umræðum og hætta að njósna úr fjarlægð.
Ég var að ræða við strákana á smurstöðinni hjá Vélaverkstæði Hjalta í Hafnarfirði og spurði hvað svona venjuleg olíuskipti kostuðu.
Ef miðað er við BMW 520i 89-95
Skipt um
olíusíu, Loftsíu og olíu
Skoðað hvort vanti á kassa eða drifi
Og síðan service klukkan endursett
Samtals verð 7243 kr með vsk.

Posted:
Mon 21. Jul 2003 10:47
by oskard
hvernig olía er sett á, ef það er notuð normal fólksbíla olía á þessu
verkstæði vs. performance olía hjá tb þá er þetta nokkuð eðlilegur
mismundur


Posted:
Mon 21. Jul 2003 10:48
by Kull
Verðið fer náttúrulega eftir því hvernig olíu menn eru að kaupa. Olían sem maður er að kaupa á M5 er ansi dýr og maður þarf all nokkuð af henni. Á "venjulegan" bíl er hægt að sleppa með mun ódýrari olíu.
Mér skildist á B&L deginum að afslátturinn gildi bara uppí varahlutaverslun en ekki á verkstæðinu.

Posted:
Mon 21. Jul 2003 11:03
by ValliP
Ef notuð er Visco 7000 þá kostar þetta 10348 kr með vsk

Posted:
Mon 21. Jul 2003 16:52
by Dr. E31
Kull wrote:Mér skildist á B&L deginum að afslátturinn gildi bara uppí varahlutaverslun en ekki á verkstæðinu.
Ég fékk 15% af öllu niður á verkstæði með klúbbskírteininu, Atli þjónustustjóri var þarna meðana ég var að gera upp og hann sagði það að afslátturinn væri kominn niður að verkstæði líka.

Posted:
Mon 21. Jul 2003 17:06
by hlynurst
15%?!?! ekki fékk ég það, fékk 10%... en ég fékk 10 % af vinnu líka. Mjög sáttur við B&L!


Posted:
Mon 21. Jul 2003 20:39
by Kull
Núnú, það er ekkert verið að tilkynna það, ekki eins og það sé yfirfullt af fréttum á forsíðunni


Posted:
Mon 21. Jul 2003 21:00
by Dr. E31
Kull wrote:Núnú, það er ekkert verið að tilkynna það, ekki eins og það sé yfirfullt af fréttum á forsíðunni

Já, það er ekkert voða mikil hreifing á "Frétta" dálkinum.


Posted:
Mon 21. Jul 2003 22:44
by oskard
ykkur er velkomið að senda inn fréttir á:
oskard@bmwkraftur.is
eða
arnib@bmwkraftur.is
