Svessi wrote:
Ég þekkti strák sem var fyrir sirka 5-6 árum mikið að pæla í að láta setja topplúgu á Nissan Sunny SR sem hann átti.
Já, já, ég veit Nissan Sunny, en þetta er þokkalega flottur bíll hjá honum þá, þótt þetta hafi verið sunny.
Allavega þá var hann búinn að finna einhverja gaura sem voru tilbúnir að taka þak af tjónabíl sem væri með þá orginal topplúgu og setja það þak á bílinn hjá honum. Kostnaðurinn var bæði þak af tjónabíl (um 30-40 þús kr) og svo einhversstaðar á bilinu 100-150 þús kr kostnaður við að skipta um þak, sjóða saman, pússa og sparsla og lakka og gera fínt.
Hann fór reyndar aldrei út í þetta en var mikið búinn að skoða þetta.
En eins og ég var búinn að segja þá var þetta fyrir 5-6 árum.
Veit ekki hvað BMW karlarnir hérna segja við svona hugmyndum, en allavega þessi gaur sem ég þekkti var búinn að finna einhverja sem voru tilbúnir að fara út í svona hérna heima.
Reyndar veit ég því miður ekki um neitt svona topplúgudæmi sem hefur verið gert. En hinsvegar er það til, hef séð myndir af því að Honda CRX-inn kom með glerþaki í dýrari týpum í japan.
Svo hafa evrópumenn og bandaríkjamenn verið að kaupa þessi þök og setja svona á bílana sína með misjöfnum árangri, svona afsöguð þök hafa öðru hverju komið inn á ebay.
Svo er Bílasmiðurinn á Bíldshöfða með svona topplúgur svipað eins og bjornvil póstaði hér ofar, en það kæmi aldrei vel út á BMW og kostnaður við þetta er í kringum 150-200 þús með ísetningu, fer eftir stærð og gerð.
Ef þú ert að tala um Stjána Nismo þá skipti hann um það og er núna kominn með topplúgu þak á SR Sunny-inn sinn, alveg einsog það hafi bara komið orginal.
http://www.cardomain.com/ride/379593/3 Hér er bíllinn hans einog hann keyptu hann og svo á næstu síðu er hann með topplúgu
