Page 1 of 1

PDC (bakkskynjarar)

PostPosted: Mon 29. Jan 2007 11:37
by e_b
Góðan daginn,

Lenti í því í morgun að þegar ég set í bakkgír (eða kveiki handvirkt á bakkskynjurunum) þá heyrist bara eitt langt píp (sem hættir svo eftir smá tíma) óháð því hvort ég sé nálægt einhverju eða ekki.

Einhver hugmynd um hvað gæti valdið? Þetta virkaði fínt í gærkvöldi og það hefur ekkert komið fyrir bílinn síðan þá (það eina sem hefur "komið fyrir" bílinn síðustu daga er að ég þvoði hann vel og vandlega og bónaði um helgina, spurning hvort það hafi eitthvað skemmt eitthvað?).

Er einhver góð leið fyrir mann til að prófa þessa skynjara (ef einn þeirra skildi vera bilaður)?

Þetta er E39 bíll, 2003 árgerð.



Kv.
E_B

PostPosted: Mon 29. Jan 2007 11:42
by Doror
Þú ert væntanlega búin að skoða skynjarana og tjekka á óhreinindum á þeim osfrv. Pípti stöðugt hjá mér um daginn sökum snjós.

Re: PDC (bakkskynjarar)

PostPosted: Mon 29. Jan 2007 11:51
by Steinieini
e_b wrote:Góðan daginn,

Lenti í því í morgun að þegar ég set í bakkgír (eða kveiki handvirkt á bakkskynjurunum) þá heyrist bara eitt langt píp (sem hættir svo eftir smá tíma) óháð því hvort ég sé nálægt einhverju eða ekki.

Einhver hugmynd um hvað gæti valdið? Þetta virkaði fínt í gærkvöldi og það hefur ekkert komið fyrir bílinn síðan þá (það eina sem hefur "komið fyrir" bílinn síðustu daga er að ég þvoði hann vel og vandlega og bónaði um helgina, spurning hvort það hafi eitthvað skemmt eitthvað?).

Er einhver góð leið fyrir mann til að prófa þessa skynjara (ef einn þeirra skildi vera bilaður)?

Þetta er E39 bíll, 2003 árgerð.



Kv.
E_B


Ætli það þurfi ekki bara að skipta einum eða fleiri skynjara út. BogL geta eflaust séð hver það er fyrir þig

PostPosted: Mon 29. Jan 2007 11:51
by e_b
Bíllinn er nýbónaður þannig að skynjararnir eru tandurhreinir. Renndi nú samt yfir þá áðan og gat ekki séð neitt á þeim.


Kv.
E_B

PostPosted: Mon 29. Jan 2007 11:53
by Aron Andrew
e_b wrote:Bíllinn er nýbónaður þannig að skynjararnir eru tandurhreinir. Renndi nú samt yfir þá áðan og gat ekki séð neitt á þeim.


Kv.
E_B


Getur verið að það hafi komsit einhver raki inn í gaurana?

Prufa að hitablása þetta?

PostPosted: Mon 29. Jan 2007 12:24
by e_b
Þarf maður að þurrka bílnum núna eftir þvott :D

Prófa þetta. Sé líka hvort þetta breytist í dag.

Ef einhver skynjarinn er hinsvegar dáinn, hvað kostar svoleiðis kvikindi?


Kv.
E_B