bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Rafmagnsvandamál E28 - Fixed 20/01 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=19630 |
Page 1 of 1 |
Author: | srr [ Fri 19. Jan 2007 16:19 ] |
Post subject: | Rafmagnsvandamál E28 - Fixed 20/01 |
Sælir félagar, Ég ætla vita hvort einhver reynsluboltinn liggi á visku sem gæti hjálpað mér með E28 bílinn minn. Hann er 518i 09/87, M10B18 Það sem er aðallega að angra mig eru einhverskonar rafmagnsdraugagangur í honum. Þegar ég sótti bílinn í nóvember til Gunna bróður í Keflavík, þá virkaði miðstöðin og afturrúðudefrosterinn. Það virkaði í ca 15 mín, svo dó það. Hefur ekki virkað síðan. Það sem mér datt fyrst í hug voru léleg geymasambönd. Ég er búinn að skipta um rafgeymatengingar, bæði plús og mínus skó ásamt nýrri mínus lögn í boddýið. Einnig skipti ég um hausinn á öryggjaboxkaplinum, sem boltast við plús pólinn. Skipti um þau öryggi sem tengjast þessum hlutum.... Ekkert af því hafði neitt að segja varðandi miðstöð né afturrúðuna. Svo hef ég lent í því að inniljósið virkar bara eftir dúk og disk. Einnig kemur fyrir að samlæsingarnar séu að stríða mér. T.d. þegar ég opna bílinn, þá læsir hann sér og opnar þangað til ég sting lyklinum í svissinn. Svo þegar ég læsi bílnum með lyklinum, þá aflæsir hann sér. Þetta þarf ég að gera ca 3-4 sinnum til að hann læsi sér. Ég reif alla innréttinguna í sundur til að skoða á bakvið miðstöðvarpanelinn, þar sá ég ekkert ótengt eða í ólagi. Mældi hvað hraðatakkinn væri að gefa í straum út í miðstöðvarmótorinn, fékk út að allir 1-3 væru dauðir en 4. stig gæfi út 12 volt. Sem segir mér að mótorinn ætti samt að fara í gang? Jæja, major rafmagnsdraugar og ég vona að einhverjum detti einhver snilldin í hug. Ég finn ekki að það séu nein relay fyrir miðstöð né afturrúðudefroster. Veit einhver hvar þau séu ? Kveðja, Skúli....hatar bílarafmagn... |
Author: | gstuning [ Fri 19. Jan 2007 16:37 ] |
Post subject: | |
Ég var í svipuð með M42 bílinn, hann vildi ekki kveikja á mótorinum eftir að elta 12voltin að tenginu og frá því þá athugaði ég 12v við mótorinn og þar var 12v, mótorinn steindauður, ef þú ert að fá 12v í rofann athugaðu þá hjá mótornum, þetta gæti verið samblanda af biluðum viðnámum og svo dauðum mótor |
Author: | Lindemann [ Fri 19. Jan 2007 17:01 ] |
Post subject: | |
það er allavega pottþétt relay fyrir afturrúðuhitarann. Það er undir aftursætinu í e34, hefuru ath. þar? |
Author: | srr [ Fri 19. Jan 2007 17:06 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: það er allavega pottþétt relay fyrir afturrúðuhitarann.
Það er undir aftursætinu í e34, hefuru ath. þar? Neibb, ekki tékkað þar. Ekki vitlaust að kíkja á það. Takk fyrir ![]() |
Author: | gstuning [ Fri 19. Jan 2007 17:13 ] |
Post subject: | |
spurðu líka á www.mye28.com |
Author: | srr [ Fri 19. Jan 2007 17:24 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: það er allavega pottþétt relay fyrir afturrúðuhitarann.
Það er undir aftursætinu í e34, hefuru ath. þar? Var að tékka. Undir aftursætinu eru bara vírar. Engin relay. |
Author: | Bandit79 [ Fri 19. Jan 2007 18:19 ] |
Post subject: | |
Etta er bara frostið sem er að destroya bílinn hjá þér! HATA FROST! |
Author: | íbbi_ [ Fri 19. Jan 2007 18:28 ] |
Post subject: | |
Bandit79 wrote: Etta er bara frostið sem er að destroya bílinn hjá þér!
HATA FROST! prufaðu að keyra um á leðruðum bíl með enga miðstöð ![]() |
Author: | ömmudriver [ Fri 19. Jan 2007 19:20 ] |
Post subject: | |
...eða leðraðan bíl með bilaðan vatnslás ![]() |
Author: | Jonni s [ Fri 19. Jan 2007 21:43 ] |
Post subject: | |
Nei blessaður vertu það er bara loft á milli ![]() |
Author: | srr [ Fri 19. Jan 2007 22:19 ] |
Post subject: | |
Bandit79 wrote: Etta er bara frostið sem er að destroya bílinn hjá þér!
HATA FROST! Þá hlýt ég að vera að reyna að LAGA það með þessum þráð, dont ya think ? ![]() |
Author: | srr [ Sat 20. Jan 2007 22:08 ] |
Post subject: | |
YES!!!!!!!!! Ég náði að koma miðstöðinni og afturrúðuhitaranum í gang í dag ![]() ![]() ![]() Reyndist vera ónýtt "Relief" relay sem er í öryggja/relay boxinu í húddinu. Æði að vera kominn með heitt loft á nýjan leik eftir tæpa tvo mánuði af frosthörkum INNI Í BÍL ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |