Leiðinlegur Bakkgír

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Leiðinlegur Bakkgír

Postby bjornvil » Wed 17. Jan 2007 21:08

Sælir

Fimman mín er soldið leiðinleg í bakkgírnum (beinskiptur). Þetta lýsir sér þannig að þegar maður er að taka af stað í bakkgír á hann það til að detta úr gírnum með tilheyrandi látum. Ef maður er mjög rólegur á gjöfinni og kúplingunni, eða bara heppinn, þá gerist þetta ekki. En þetta er að gerast oftar hjá konunni en hjá mér :roll:, þið skiljið :). En þetta er svona nett pirrandi og þeir sem ég hef talað við hjá TB og B&L hafa sagt að þetta sé eitthvað inni í kassanum og kosti eflaust morðfjár að gera við.

Er einhver hérna sem kannast við þetta eða getur leiðbeint mér með hvernig á að laga þetta? Annars sögðu þeir í B&L að það væru margir bílar með þennan kassa og ætti ekki að vera mikið mál að finna notaðann. Passa allir kassar af M52 mótorum á þennan mótor eða þarf það að vera kassi úr 523i/323i?

Takk :)
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby JónP » Wed 17. Jan 2007 21:17

Gerðist akkúrat sama fyrir bíl sem ég átti. Þá voru tennurnar á tannhjólinu fyrir bakkgírinn nánast farnar. Það þurfti að skipta um tannhjólið og það kostaði alveg slatta.
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby bjornvil » Wed 17. Jan 2007 21:24

Já, þessvegna er ég að spá hvort maður ætti ekki bara að reyna að finna annan kassa. Þessi kassi virðist vera í rosalega mörgum bimmum samkvæmt þessu:

This BMW part works for the following BMW models and year ranges:
1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 BMW Z3 2.3/2.5 CONV ( EZ3 ) BMW 323CI 2DR ( E46 ) BMW 323CI CONV ( E46 ) BMW 323I Wagon ( E46 ) BMW 323I 4DR ( E46 ) BMW 323I 4DR ( E36 ) BMW 323I CONV ( E36 ) BMW 323IS 2DR ( E36 ) BMW 525I 4DR ( E39 ) BMW 320I 4DR ( E46 ) BMW 325CI 2DR ( E46 ) BMW 325CI CONV ( E46 ) BMW 325I 4DR ( E46 ) BMW 325I Wagon ( E46 ) BMW Z3 2.5i CONV ( EZ3 ) BMW 325I 4DR ( E36 ) BMW 325IS 2DR ( E36 ) BMW 325I CONV ( E36 )
Image
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby Gunni » Wed 17. Jan 2007 21:37

Þetta kom fyrir í bmw sem ég átti einusinni, sami kassi. Það lýsti sér þannig að oftast
poppaði hann úr 1. gír. Það var einhver skiptigaffall í kassanum sem var farinn.
Mig minnir að það hafi kosað 100 þúsund krónur að gera við þetta.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bjornvil » Wed 17. Jan 2007 21:43

Einmitt, einhver í B&L talaði um að það gæti verið farinn skiptigaffall. Var þessi 100 þúsundkall ekki mest fyrir vinnuna?

Hefur einhver einhverntíman rekist á svona kassa til sölu?
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby Gunni » Wed 17. Jan 2007 22:10

bjornvil wrote:Einmitt, einhver í B&L talaði um að það gæti verið farinn skiptigaffall. Var þessi 100 þúsundkall ekki mest fyrir vinnuna?

Hefur einhver einhverntíman rekist á svona kassa til sölu?


Jú vinnan hefur verið mesti hlutinn af þessu.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests