Page 1 of 2
Lausagangur

Posted:
Fri 22. Dec 2006 17:49
by geirlaugur
Er með BMW 316i 1995 árgerð.
Stundum þegar að ég ræsi hann kemur smá hökt í mótorinn og snúningshraðamælirinn fer upp og niður sem endar svo með því að hann drepur á sér.
Ef ég ræsi hann aftur þá er yfirleitt allt í lagi.
Hvað mynduð þið halda að gæti verið að ?

Posted:
Sat 23. Dec 2006 19:34
by Aron Andrew
Þetta er gamli minn
Ætlar enginn að hjálpa stráknum


Posted:
Sat 23. Dec 2006 20:23
by geirlaugur
Hljómar aðeins eins og bensíndælan sé að gefa sig.
Finn að stundum þarf ég að gefa aðeins meira bensín inn til að fá réttan kraft svo lagast það aftur og verður eðlilegt.
(semsagt virðist hann stundum missa smá kraft og snúningshraðamælirinn tikkar aðeins upp og niður, lagast yfirleitt eftir smá stund.)

Posted:
Sun 24. Dec 2006 07:32
by Alpina
F.P.R ?????
eða hægagangs rofi ??????

Posted:
Sun 24. Dec 2006 12:26
by geirlaugur
Já, þetta er semsagt þannig að þegar að ég ræsi hann, þá stundum fer snúningshraðamælirinn upp og niður og það kemur hökt í mótorinn.
Svo gerist það líka stundum að hann fari eðlilega í gang en svo finn ég að ég þarf að gefa meira í til að komast áfram, (svipað og hann væri settur í handbremsu á ferð og svo tekinn aftur úr) svo lagast það yfirleitt eftir smá tíma.
(Hann á það til að vera lengi í gang, þarf þá að starta tvisvar)
er búinn að skipta um kerti og rafgeymi.

Posted:
Sun 24. Dec 2006 14:35
by íbbi_
helst hann í gangi á gjöfini? í mörgum mótorum er hægagangsmótorinn þannig að hann bypassar lofti framhjá TB þegar það er lokað og heldur þannig lausaganginum, þegar hann feilar þá fær b´llin ekki nóg loft þegar spjaldið er lokað og höktir og hristist og drepur á sér

Posted:
Sun 24. Dec 2006 15:09
by geirlaugur
Já, held að hann haldist í gangi á gjöfinni.

Posted:
Sun 24. Dec 2006 15:17
by geirlaugur
en þegar að maður er kominn uppí t.d 2 gír þá á hann til að missa allt í einu kraft. ef maður væri á 50 þá myndi hann detta niður í ca. 40 svo gefur maður þá aðeins meira í til að ná aftur 50 og þá lagast þetta alltí einu aftur og þá er maður kominn á 60 og þarf þá að slaka aftur á bensíninu.

Posted:
Sun 24. Dec 2006 17:06
by Aron Fridrik
loftsíubarkinn er nokkuð rifa á honum ?

Posted:
Sun 24. Dec 2006 18:28
by Aron M5
örugglega höfuðrofinn i öryggjabrakketinu

Posted:
Mon 25. Dec 2006 12:00
by Jökull
Bensíndælu relay????? Athuga það áður en farið er útí einhverjar aðgerðir...

Posted:
Mon 25. Dec 2006 17:20
by geirlaugur
Allavega ekki sjáanlegt gat á loftsíubarkanum.
En hvar er bensíndælurelayið i þessum bíl ?
Öryggja boxinu eða mælaborðinu ?

Posted:
Mon 25. Dec 2006 18:58
by Einari
öryggjaboxinu í húddinu. Heitir sjálfsagt kraftstofspumpe eða eitthvað álíka

Posted:
Tue 26. Dec 2006 15:39
by geirlaugur
krafstofspumpe er númer 18.
En ég sé engin númer við relayin.
Hvernig á maður að vita hvaða öryggi er hvað í öryggjaboxinu í húddinu finn hvergi númer nema undir sumum öryggjum.

Posted:
Fri 29. Dec 2006 23:25
by Einari
inni í lokinu er svona mynd, upphleypt í plastinu sem sýnir hvaða öryggi er númer hvað
..eða var það ofaná lokinu
