Page 1 of 1

Stilling á framstuðara á E32

PostPosted: Mon 07. Jul 2003 23:19
by Bjarki
Er að taka stuðarana á bílnum mínum aðeins í gegn þeir voru orðnir þreyttir eftir 13 ár. Fyrri eigendur áttuðu sig ekki alveg á því hvað þetta er langur bíll!!
Sprautaði fram- og afturstuðarann. Sá sem átti bílinn á undan mér keyrði eitthvað á og braut stefnuljós og skekkti framstuðarann einhverjar æfingar á bílastæði. Ég endurnýjaði ljósið strax núna er stuðarinn nýsprautaður og þá er bara að stilla stuðarann sem er frakar skakkur.
Hvernig er þetta gert? Það stendur ekkert um þetta í Bentley en ég held að maður geti stillt hæðina á honum með skrúfu sem gengur í gegnum stuðaratjakkinn. Öll ráð vel þegin.

PostPosted: Tue 19. Aug 2003 15:45
by GHR
hehe, ég er kannski bara svona mikill mixari að eðlisfari en þegar ég tók stuðarann af hjá mér þá setti ég bara 5 skinnur á milli :lol: