bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Green Stuff eða Red Stuff? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=18505 |
Page 1 of 2 |
Author: | bebecar [ Fri 17. Nov 2006 15:48 ] |
Post subject: | Green Stuff eða Red Stuff? |
Ég er að skipta um bremsur á bílnum og fæ einhverja sportdiska frá EBC með Green Stuff klossum (allan hringinn). Ég er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fá Red Stuff í staðinn þar sem viðnámið á þeim klossum er meira og því styttri hemlunarvegalengd? Hvaða hafa menn verið að taka hér í þessum gerðum? Mér er eiginlega alveg sama þó það ískri og skruni á meðan ég hægji á bílnum svo framarlega sem Red Stöffið sé raunverulega betra... Einhver komment á þetta? PS, þetta er fyrir Golfinn ekki Bimmann. |
Author: | bjahja [ Fri 17. Nov 2006 15:50 ] |
Post subject: | |
Er þér sama þótt það ískri...........ertu loco!??! |
Author: | bebecar [ Fri 17. Nov 2006 15:54 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Er þér sama þótt það ískri...........ertu loco!??!
DJÖ ![]() ![]() Loco... hvað meinarðu? Ég vil bara að bíllinn bremsi almennilega - ef það þarf ískur til þá er mér slétt sama ![]() ![]() Ég er eiginlega meira vanur bílum með allskonar aukahljóðum en einhverjum hljóðlátum "heimilstækjum"... enda búnir að vera nokkrir gamlir hjá mér síðustu ár. Smá brak í nýjum bíl er miklu meira pirrandi en helling óhljóð í gömlum sko ![]() |
Author: | bjahja [ Fri 17. Nov 2006 16:01 ] |
Post subject: | |
Jájá, skil alveg hvað þú meinar en ég gæti aldrei verið með ískrandi bremsur þótt að þær myndu kanski spara mér 3 cm í bremsuvegalengd frá 100 ![]() En síðan þarf ekkert að vera að það ískri í red stuff frekar en green. Ég er með Hawk klossa hjá mér, ég tilkeyrði þá rétt (samkvæmt internetinu) og bar svona anti ískur lube á klossana og það ískrar ekkert hjá mér. nb maður ber ekki lubið á snertiflötin ![]() |
Author: | bebecar [ Fri 17. Nov 2006 16:06 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Jájá, skil alveg hvað þú meinar en ég gæti aldrei verið með ískrandi bremsur þótt að þær myndu kanski spara mér 3 cm í bremsuvegalengd frá 100
![]() En síðan þarf ekkert að vera að það ískri í red stuff frekar en green. Ég er með Hawk klossa hjá mér, ég tilkeyrði þá rétt (samkvæmt internetinu) og bar svona anti ískur lube á klossana og það ískrar ekkert hjá mér. nb maður ber ekki lubið á snertiflötin ![]() Hehe - já, það er víst vissara að bera lúbið ekki á snertiflötinn... Neibb, það er ekkert víst það ískri í þessu - en bottom lænið er að á 160 km/h munar ekki minna en 13 metrum á hemlunarvegalend... og þar sem ég er iðulega á þessari ferð þá ![]() |
Author: | Lindemann [ Fri 17. Nov 2006 16:42 ] |
Post subject: | |
ég hef enga reynslu af þessu, en ég las einhverntíman að red stuffið væri ekkert sérstaklega gott til daglegra nota þar sem þeir klossar þyrftu að hitna meira til að ná fullri virkni, því væru þeir aldrei að virka vel dags daglega nema maður keyri alltaf eins og kolbrjálaður bavíani. |
Author: | bebecar [ Fri 17. Nov 2006 16:56 ] |
Post subject: | |
Það stendur reyndar að green stuff "brake well from cold" en svo er ekki minnst á að hitt sé neitt slæmt í köldu... Reyndar eru komnir líka yellow stuff sem er eitthvað keppnisdót en það bremsar einmitt vel í köldu. Líklega er best að byggja á reynslu annarra, eins og svo oft. Flestir virðast vera að taka græna stöffið. |
Author: | gdawg [ Fri 17. Nov 2006 17:06 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: ég hef enga reynslu af þessu, en ég las einhverntíman að red stuffið væri ekkert sérstaklega gott til daglegra nota þar sem þeir klossar þyrftu að hitna meira til að ná fullri virkni, því væru þeir aldrei að virka vel dags daglega nema maður keyri alltaf eins og kolbrjálaður bavíani.
Laukrétt, þú setur "scrubbaða" redstuff í vasann til að setja undir þegar þú ferð á Nürburgring, þurfa smá notkun til að hitna. Green stuff eru mjög fínir, sóta sama og ekkert hjá mér á Mini. |
Author: | bebecar [ Fri 17. Nov 2006 18:26 ] |
Post subject: | |
gdawg wrote: Lindemann wrote: ég hef enga reynslu af þessu, en ég las einhverntíman að red stuffið væri ekkert sérstaklega gott til daglegra nota þar sem þeir klossar þyrftu að hitna meira til að ná fullri virkni, því væru þeir aldrei að virka vel dags daglega nema maður keyri alltaf eins og kolbrjálaður bavíani. Laukrétt, þú setur "scrubbaða" redstuff í vasann til að setja undir þegar þú ferð á Nürburgring, þurfa smá notkun til að hitna. Green stuff eru mjög fínir, sóta sama og ekkert hjá mér á Mini. Ok, Green Stuff it is then ![]() |
Author: | gunnar [ Fri 17. Nov 2006 18:44 ] |
Post subject: | |
Væri nú svolítið fyndið að sjá Ingvar alveg á fulluspani útum allt bara svo hann gæti hemlað.. "afsakið lögreglunþjónn ég bara varð að keyra svona hratt til þess að geta bremsað mig niður þú skilur...." ![]() |
Author: | bebecar [ Fri 17. Nov 2006 19:00 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Væri nú svolítið fyndið að sjá Ingvar alveg á fulluspani útum allt bara svo hann gæti hemlað..
"afsakið lögreglunþjónn ég bara varð að keyra svona hratt til þess að geta bremsað mig niður þú skilur...." ![]() Asssskoti góð afsökun auðvitað ![]() |
Author: | Angelic0- [ Fri 17. Nov 2006 19:26 ] |
Post subject: | |
ég keypti á sínum tíma RedStuff klossa í Sunny sem að ég átti... og þeir spændust niður á no-time og í staðinn kom Green stuff og ég fékk aldrei að kynnast því hvað þeir entust því að bíllinn endaði svona; ![]() Já, þetta er innanbæjar.... og nei, ég nenni ekki að útskýra hvernig þetta gerðist ! |
Author: | Bjarkih [ Fri 17. Nov 2006 19:46 ] |
Post subject: | |
Ég get allavega mælt með green stuff, sóta ekkert og endast mjög vel. |
Author: | Alpina [ Sun 19. Nov 2006 14:57 ] |
Post subject: | |
Hvað borgaðirðu fyrir svona klossa |
Author: | bebecar [ Sun 19. Nov 2006 15:30 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: Hvað borgaðirðu fyrir svona klossa
Ég veit ekki hvað klossarnir kosta en ég borga 3200 DKK fyrir nýja diska frá EBC og Green Stuff klossa allan hringinn. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |