bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
felguvesen https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=18441 |
Page 1 of 2 |
Author: | zneb [ Tue 14. Nov 2006 19:28 ] |
Post subject: | felguvesen |
Bíllinn víbrar aðeins hjá mér í kringum 70. Veit að það vantar e-a plasthringi á felgurnar til að þær passi betur sem gæti orsakað þetta. Þær eru semsagt aðeins of rúmar var mér sagt. Er bara málið að fara á dekkjaverkstæði og fá þá til að finna útúr þessu eða...?? |
Author: | ///M [ Tue 14. Nov 2006 19:36 ] |
Post subject: | Re: felguvesen |
zneb wrote: Bíllinn víbrar aðeins hjá mér í kringum 70. Veit að það vantar e-a plasthringi á felgurnar til að þær passi betur sem gæti orsakað þetta. Þær eru semsagt aðeins of rúmar var mér sagt. Er bara málið að fara á dekkjaverkstæði og fá þá til að finna útúr þessu eða...??
??? fyrst að þú veist hvað er að afhverju lagarðu það þá ekki ![]() ![]() ![]() |
Author: | Bjöggi [ Tue 14. Nov 2006 19:41 ] |
Post subject: | |
það eru kónarnir á felguboltunum sem passa að felgan sé á 100% réttum stað, þetta með plasthringina hefur ekkert með þetta að gera. þú þarft sennilega bara að láta ballansera dekkin hjá þér, ef það lagast ekki við það gætum við verið að tala um spindilkúlur eða stýrisenda, ballanseringin er margfalt líklegri samt. |
Author: | zneb [ Tue 14. Nov 2006 19:43 ] |
Post subject: | |
því ég veit ekki nákvæmlega hvað þetta stykki er né stærðina á því ![]() bjalla kannski bara á bjarka b&l og fæ betri skýringu. En menn mega alveg deila visku sinni hér samt sem áður ![]() |
Author: | Bjössi [ Tue 14. Nov 2006 19:45 ] |
Post subject: | |
zneb wrote: því ég veit ekki nákvæmlega hvað þetta stykki er né stærðina á því
![]() bjalla kannski bara á bjarka b&l og fæ betri skýringu. En menn mega alveg deila visku sinni hér samt sem áður ![]() þetta er oft nylon/plast hringur sem þú getur látið gera fyrir þig á renniverkstæði, ferð með skífumál a´felguna og nafið og sérð hver stærðin á þessu á að vera |
Author: | íbbi_ [ Tue 14. Nov 2006 19:51 ] |
Post subject: | |
farðu í hjólbarðahöllina, ég lét smíða sona í benz sem ég átti hann einmitt steinhætti að víbra |
Author: | zneb [ Tue 14. Nov 2006 19:52 ] |
Post subject: | |
ok takk fyrir þetta, fer og tékka á þessu á morgun |
Author: | ///M [ Tue 14. Nov 2006 19:52 ] |
Post subject: | |
Bjöggi wrote: það eru kónarnir á felguboltunum sem passa að felgan sé á 100% réttum stað, þetta með plasthringina hefur ekkert með þetta að gera.
núna ert þú að tala með rassgatinu ![]() |
Author: | Bjöggi [ Tue 14. Nov 2006 20:38 ] |
Post subject: | |
///M wrote: Bjöggi wrote: það eru kónarnir á felguboltunum sem passa að felgan sé á 100% réttum stað, þetta með plasthringina hefur ekkert með þetta að gera. núna ert þú að tala með rassgatinu ![]() ég biðst afsökunar á þessu, ég var bara alveg viss um þessir hringir skiptu engu máli. Hérna eru ágætis útskýringar um þetta og hvernig þetta er gert http://autospeed.drive.com.au/cms/A_2242/article.html ég hef alltaf staðið í þeirri trú að þessir blessuðu hringir þjónuðu öðrum tilgangi en að koma í veg fyrir víbring, sorry my bad... |
Author: | Aron Andrew [ Tue 14. Nov 2006 20:42 ] |
Post subject: | |
Hringirnir eru til þess að felgan passi uppá nafið, því ef að felgan passar ekki uppá nafið þá víbrar |
Author: | Bjarki [ Tue 14. Nov 2006 23:05 ] |
Post subject: | |
þetta eru hringirnir eins og fyrr segir. Renniverkstæði Ægis hefur rennt svona fyrir mig mjög oft. Þeir renna líka fyrir hjólbarðahöllina. Það er hægt að hringja í þá og panta þetta og spara sér tíma og akstur. Innanmál yrði hjá þér: 72,5mm Stundum stendur hubring á felgunni, annars bara hægt að mæla það með skíðmáli eða flétta upp ákveðnu code'i sem hver felga hefur og fá málið útfrá því. |
Author: | Jónas [ Wed 15. Nov 2006 20:45 ] |
Post subject: | |
Varst þú á UO-XXX M5 áðan? ef svo er, vonandi lagaðist þetta ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 15. Nov 2006 20:53 ] |
Post subject: | |
Bjöggi wrote: það eru kónarnir á felguboltunum sem passa að felgan sé á 100% réttum stað, þetta með plasthringina hefur ekkert með þetta að gera.
Þarna ferðu með ,,rangt ,, mál ,félagi Ef þú tekur E39 felgu sem er 74 mm og setur á E23/34/32/38 sem eru með 72.5mm gat þá vibrar bíllinn,,,,, Þessvegna er verið að setja plasthringina |
Author: | Lindemann [ Wed 15. Nov 2006 21:50 ] |
Post subject: | |
og þú getur fengið þessa hringi úr áli í TB.......kostar KLINK. ég man ekki hvort það kostaði rúmlega 70kr stk eða eitthvað í þá áttina. |
Author: | Bjöggi [ Thu 16. Nov 2006 13:35 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: Bjöggi wrote: það eru kónarnir á felguboltunum sem passa að felgan sé á 100% réttum stað, þetta með plasthringina hefur ekkert með þetta að gera. Þarna ferðu með ,,rangt ,, mál ,félagi Ef þú tekur E39 felgu sem er 74 mm og setur á E23/34/32/38 sem eru með 72.5mm gat þá vibrar bíllinn,,,,, Þessvegna er verið að setja plasthringina ég hélt ég væri búinn að leiðrétta mig "félagi" ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |