Page 1 of 1

hjálp

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 09:03
by diddilitli
Ég er með e34 520i 88" árgerð. Hann byrjaði að drepa á sér ef að ég sleppti bensíngjöfinni og ég rétt náði að koma mér heim og þegar ég var kominn í hlaðið heima þá drap hann á sér og gekk bara rétt svo í hægagangi og drap á sér þegar ég reyndi að koma honum á snúning. Svo náði ég honum uppá snúning og var búinn að halda honum á 3000 rpm þegar að það kom skrýtið hljóð og bíllinn hvarf í reyk og bíllinn drap á sér og fer ekki í gang núna, kemur bara mikill reykur úr pústinu þegar að ég starta. Bíllinn hitaði sig ekki og það var olía á honum. Mótorinn er ekki fastur.

Er einhver sem hefur lent í þessu eða veit hvað þetta gæti verið ?

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 10:00
by Einsii
Er þetta ekki bara heddpakning ??

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 10:01
by diddilitli
gæti verið sko!

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 10:02
by diddilitli
Einsii wrote:Er þetta ekki bara heddpakning ??


hefur samt aldrei neitt horfið vatn af honum í miklu magni og vélin er bara ekin 78 þús :roll:

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 11:02
by siggir
Hvernig er þessi reykur á litinn?

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 12:24
by diddilitli
siggir wrote:Hvernig er þessi reykur á litinn?


frekar ljós, samt finnst mér hann ekki vera allveg hvítur, en ég hef bara eiginlega ekki reynsluna til að dæma hvort þetta sé gufa sko :oops:

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 12:29
by ömmudriver
Hvernig lyktar reykurinn :?

PostPosted: Wed 08. Nov 2006 12:41
by Stebbtronic
Mikið svakalega hjómar þetta allt eins og það hafi náð að frjósa á honum kælivatnið og við séum að tala um sprungið hedd.
Ég hallast að því , því miður :(

PostPosted: Wed 08. Nov 2006 12:51
by diddilitli
var nú samt frostlögur á honum!

PostPosted: Wed 08. Nov 2006 14:51
by Einsii
diddilitli wrote:var nú samt frostlögur á honum!

Ekki hreinn frostlögur er það ?

PostPosted: Wed 08. Nov 2006 15:07
by diddilitli
Einsii wrote:
diddilitli wrote:var nú samt frostlögur á honum!

Ekki hreinn frostlögur er það ?


blandaður 50/50 á móti vatni bara

PostPosted: Wed 08. Nov 2006 15:15
by diddilitli
hvaða verkstæði mæla menn með ?

finnst þetta frekar dýrt!

PostPosted: Wed 08. Nov 2006 16:47
by Bjöggi
ég skal gera þetta fyrir þig fyrir sanngjarnt verð, ég er nýbúinn með minn.

sendu mér bara pm ef þú hefur áhuga 8)