Ég er með e34 520i 88" árgerð. Hann byrjaði að drepa á sér ef að ég sleppti bensíngjöfinni og ég rétt náði að koma mér heim og þegar ég var kominn í hlaðið heima þá drap hann á sér og gekk bara rétt svo í hægagangi og drap á sér þegar ég reyndi að koma honum á snúning. Svo náði ég honum uppá snúning og var búinn að halda honum á 3000 rpm þegar að það kom skrýtið hljóð og bíllinn hvarf í reyk og bíllinn drap á sér og fer ekki í gang núna, kemur bara mikill reykur úr pústinu þegar að ég starta. Bíllinn hitaði sig ekki og það var olía á honum. Mótorinn er ekki fastur.
Er einhver sem hefur lent í þessu eða veit hvað þetta gæti verið ?
