bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvar fæ ég verkfæri til að ná hjólaleguni úr að aftan
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=18305
Page 1 of 1

Author:  Bensi.Gabb [ Sun 05. Nov 2006 23:53 ]
Post subject:  Hvar fæ ég verkfæri til að ná hjólaleguni úr að aftan

Vantar að vita hvar ég fæ þetta verkfæri. E36 316 92
Drifskaftið komið úr. en flánsin sem er upp á legunni fer ekki úr nema
með BMW puller. Finn að vísu ekki rétta síðu af þessu verkfæri.
TB eða B&L ?.

Author:  Bjarki [ Mon 06. Nov 2006 01:22 ]
Post subject:  Re: Hvar fæ ég verkfæri til að ná hjólaleguni úr að aftan

Bensi.Gabb wrote:
Vantar að vita hvar ég fæ þetta verkfæri. E36 316 92
Drifskaftið komið úr. en flánsin sem er upp á legunni fer ekki úr nema
með BMW puller. Finn að vísu ekki rétta síðu af þessu verkfæri.
TB eða B&L ?.


Veit ekki hvar þú færð þetta special tool, tb og b&l eru líklegastir til þess að eiga þetta en varla til sölu eða leigu.
Ég hef skipt um þessa legu og notað toppa í ýmsum stærðum, snittaðan tein og e-a universal hringi og dót.
Getur verið alveg þvílíkt fast og leiðinlegt.
Þú átt væntanlega við öxulinn en ekki drifskaftið.
Það þarf oft að hugsa aðeins þegar maður er að útfæra það hvernig pressa skal svona hluti úr.
Þykk stálplata hefur oft nýst mér vel, þá borar maður göt eftir gatadeilingu og festir með boltum í, gat á miðjuna og útfærir svo e-ð til að ná að pressa þetta af.
Homemade BMW special-tool geta verið mjög góð. En oft spurning hvort þetta borgi sig, fer svona eftir því hvernig maður metur tímann.
Gangi þér vel.

Author:  trolli [ Mon 06. Nov 2006 08:02 ]
Post subject:  Re: Hvar fæ ég verkfæri til að ná hjólaleguni úr að aftan

Bjarki wrote:
Bensi.Gabb wrote:
Vantar að vita hvar ég fæ þetta verkfæri. E36 316 92
Drifskaftið komið úr. en flánsin sem er upp á legunni fer ekki úr nema
með BMW puller. Finn að vísu ekki rétta síðu af þessu verkfæri.
TB eða B&L ?.


Veit ekki hvar þú færð þetta special tool, tb og b&l eru líklegastir til þess að eiga þetta en varla til sölu eða leigu.
Ég hef skipt um þessa legu og notað toppa í ýmsum stærðum, snittaðan tein og e-a universal hringi og dót.
Getur verið alveg þvílíkt fast og leiðinlegt.
Þú átt væntanlega við öxulinn en ekki drifskaftið.
Það þarf oft að hugsa aðeins þegar maður er að útfæra það hvernig pressa skal svona hluti úr.
Þykk stálplata hefur oft nýst mér vel, þá borar maður göt eftir gatadeilingu og festir með boltum í, gat á miðjuna og útfærir svo e-ð til að ná að pressa þetta af.
Homemade BMW special-tool geta verið mjög góð. En oft spurning hvort þetta borgi sig, fer svona eftir því hvernig maður metur tímann.
Gangi þér vel.


veistu hvort að legan að aftan sé kónísk ?

Author:  Bensi.Gabb [ Mon 06. Nov 2006 10:44 ]
Post subject: 

Þetta er víst verkfærið.
Skil samt ekki hvernig það virkar :lol:

Fæst hjá http://www.bavauto.com

Image

$249.95

Author:  iar [ Mon 06. Nov 2006 20:22 ]
Post subject: 

Bensi.Gabb wrote:
Þetta er víst verkfærið.
Skil samt ekki hvernig það virkar :lol:


Stingur spliffinu upp á gengjuna og bankar á donkið! :-P

Author:  Bjarki [ Mon 06. Nov 2006 20:27 ]
Post subject: 

Bensi.Gabb wrote:
Þetta er víst verkfærið.
Skil samt ekki hvernig það virkar :lol:

Fæst hjá http://www.bavauto.com

Image

$249.95


Ég var reyndar með þetta kit líka en náði voðalega lítið að nota það. Veit ekki alveg hvernig þetta á að virka.
ég notaði bara snittaðan tein og pressaði þetta úr þannig.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/