Bensi.Gabb wrote:
Vantar að vita hvar ég fæ þetta verkfæri. E36 316 92
Drifskaftið komið úr. en flánsin sem er upp á legunni fer ekki úr nema
með BMW puller. Finn að vísu ekki rétta síðu af þessu verkfæri.
TB eða B&L ?.
Veit ekki hvar þú færð þetta special tool, tb og b&l eru líklegastir til þess að eiga þetta en varla til sölu eða leigu.
Ég hef skipt um þessa legu og notað toppa í ýmsum stærðum, snittaðan tein og e-a universal hringi og dót.
Getur verið alveg þvílíkt fast og leiðinlegt.
Þú átt væntanlega við öxulinn en ekki drifskaftið.
Það þarf oft að hugsa aðeins þegar maður er að útfæra það hvernig pressa skal svona hluti úr.
Þykk stálplata hefur oft nýst mér vel, þá borar maður göt eftir gatadeilingu og festir með boltum í, gat á miðjuna og útfærir svo e-ð til að ná að pressa þetta af.
Homemade BMW special-tool geta verið mjög góð. En oft spurning hvort þetta borgi sig, fer svona eftir því hvernig maður metur tímann.
Gangi þér vel.