Miðstöð e-36 97'

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Miðstöð e-36 97'

Postby bjarnif » Mon 23. Oct 2006 16:01

hæhæ.

Ég er í smá vandræðum með miðstöðina hjá mér..
Ég er á bmw 318i 97' árgerð e-36
þetta er svona tölvu miðstöð eða hvað sem þið viljið kalla það
allavega ekki takkar sem maður snýr.

En já þetta lýsir sér þannig að ég ég hækka blásturinn þá kanski gerist ekkert fyrr en löngu seinna þá allt í einu fer hún í gang.og svo eru komin einhver óhljóð í hana og síðan ef ég ætla til dæmis að slökkva á henni eftir að hún hefur komið sér í gang þá get ég það ekki og hún heldur alltaf áfram að blása heitu eða köldu. þannig að maður er alveg að drepast úr hita eða kulda...

Ætla bara að vita hvort einhver kannaðist við þetta..
hvort það sé bara tölvubúnaðurinn eða hvort þetta geti verið eitthvað með
miðstöðvar síuna.. :?

með fyrirfram þökk
kv. Bjarni
User avatar
bjarnif
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 31
Joined: Wed 08. Jun 2005 02:01
Location: Höfuðborgarsvæðið

Postby hlynurst » Mon 23. Oct 2006 16:05

Minnir að mistöðin í mínum gamla hafi látið einmitt svona, ég skipti bara um sjálft unitið og þá lagaðist þetta. Minnir að það hafi átt að kosta í kringum 40þ í B&L.
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Mon 23. Oct 2006 17:26

gæti líka verið final stage resistor þ.e. miðstöðvarviðnám.
Þekki ekki inná þessar miðstöðvar í e36 en í e39 þá lýsir þetta sér svona. Ert að keyra ekki neinn blástur, svo allt í einu fullur blástur. Slekkur á bílnum og ferð og allt á fullu. Kemur svo að bílnum og þá ekki neinn blástur..... bara pirrandi.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby hlynurst » Mon 23. Oct 2006 17:38

Viðnámið fór einmitt líka í mínum bíl þegar hann kom til landsins og þá lýsti það sér þannig að miðstöðin blés aldrei meira en 50% þrátt fyrir að ég væri með hana á fullu blasti.
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests