Page 1 of 1

Skipt um viftu

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 22:46
by siggir
Sælir drengir,

Við erum komnir í vandræði með að skipta um viftu í e30. Hvernig nær maður segulhausnum framan af vatnsdælunni? Þarf að losa vatnsdæluna eða eitthvað svoleiðis?

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 23:06
by Lindemann
Er ekki bara 32mm ró sem er hægt að losa og þá kemur þetta af?

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 23:08
by Danni
Jú, ef um viftukúplinguna er að ræða. Þá þarf bara 32mm fastan lykil, sleggju og hamrast á lyklinum. Það gerði ég allavega og það losnaði fyrir rest :mrgreen:

Og muna að það er öfugur skrúfgangur!

PostPosted: Wed 04. Oct 2006 23:17
by Lindemann
það var nóg hjá mér að strekkja bara aðeins á viftureiminni og slá svo létt á lykilinn með hendinni og róin losnaði :)