Page 1 of 1
Pakkdós

Posted:
Mon 09. Jun 2003 21:44
by flint
Ég þarf að fara láta skipta um pakkdós aftaná sjálfskiptinuni. Var að spá í hvort þetta væri eitthvað mál. ég hef aldrei átt sjálfskiptan bíl áður. get ég get þetta sjálfur. og hvar fæ ég þessa pakkdós?

Posted:
Tue 10. Jun 2003 11:07
by gstuning
Pakkdósina geturru fengið í B&L, Fálkanum, TB
Hvaða verkstæði sem er getur gert þetta

Posted:
Tue 10. Jun 2003 13:09
by GHR
Það getur verið heimikið mál en það er samt ekki víst.
Ég veit að allavega ein pakkdós á mörgum sjálfskiptingum er algjört pain in the a.... að ná til og það þarf að losa sjálfskiptinguna eitthvað niður. Og þar af leiðandi þarftu líka að losa uppá drifskaftið o.sfrv
Vona bara að það sé ekki hún


Posted:
Tue 10. Jun 2003 13:13
by gstuning
Það er samt ekkert mál að losa þetta dót, sérstaklega ef pústið kemur niður auðveldlega,
Drifskaftið er mjög auðvelt að taka niður, svo er þetta beint fyrir framan mann
Re: Pakkdós

Posted:
Tue 10. Jun 2003 14:12
by flint
Takk fyrir það. Getur þetta skemmt eitthvað frá sér ef þetta er ekki gert strax?

Posted:
Tue 10. Jun 2003 14:13
by saemi
Nahhh, bara bæta vökva á eftir þörfum. Þá ætti nú ekkert að gerast.
Sæmi
Re: Pakkdós

Posted:
Tue 10. Jun 2003 14:22
by flint
Já skil. En nú fékk ég næstum áfall. Var í sambandi í gaur útí þýskalandi sem ætlaði að selja mér dekk á felgum. Hann sagði að sendingarkostanaðurinn væri 690 evrur. getur þetta passað?

Posted:
Tue 10. Jun 2003 15:18
by gstuning
Þú meinar felgur með dekkjum
Sendingar kostnaðurinn er soldið mikið, hvernig sending er þetta express þá eða flug eða hvað,
pósturinn er leiðinlegastur
Re: Pakkdós

Posted:
Tue 10. Jun 2003 16:09
by flint
Já þær eru með dekkjum
hann sendi mér þetta þegar ég spurði um sendingarkostnaðinn
we normaly send by UPS, but sending to island is very expensive it
cost 690,-- EUR !!!
Maybe you can find an importer or transport company in island who
carry
the wheels cheaper.
Re: Pakkdós

Posted:
Wed 11. Jun 2003 09:13
by benzboy
flint wrote:Já skil. En nú fékk ég næstum áfall. Var í sambandi í gaur útí þýskalandi sem ætlaði að selja mér dekk á felgum. Hann sagði að sendingarkostanaðurinn væri 690 evrur. getur þetta passað?
Ég fékk 4x19" með dekkjum sendar með flugi á 270 Evrur (eða um það bil)

Posted:
Wed 11. Jun 2003 09:28
by gstuning
BenzBoy vantar þér dekk
GST getur reddað "19 Falken á lítið
eða hvaða Falken í raun á mjög lítið

Posted:
Wed 11. Jun 2003 22:07
by benzboy
gstuning wrote:BenzBoy vantar þér dekk
GST getur reddað "19 Falken á lítið
eða hvaða Falken í raun á mjög lítið
Mig vantar þau ekki eins og er. Sumardekkin hjá mér eru mjög lítið slitin og vetrardekkin (18") sem eru á felgunum sem voru undir bílnum þegar ég keypti hann eru nánast ný. Gæti hinsvegar komið að því síðar og þá mun ég örugglega tékka á því hjá þér. Hinsvegar vantar mig alltaf "performance hluta" (var reyndar búinn að hringja í þig útaf því) svo ef þú flytur inn frá einhverjum sem er með eitthvað slíkt (ECU, E-PROM, air-intake, lækkunargorma, bremsur eða bara name it) gæti ég alveg haft áhuga
