bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Þrif á felgum (mjög skítugum)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=16428
Page 1 of 2

Author:  Bjarki [ Sat 15. Jul 2006 06:21 ]
Post subject:  Þrif á felgum (mjög skítugum)

Er til e-ð efni sem þrífur drullu af hlutum án þess að éta upp húðanir og hægt er að blanda saman með vatni og láta hlutina liggja í yfir nótt.
Er með skítuga álfelgu sem ég þarf að hreinsa, búinn að úða á hana miklu magni af hreinsiefnum og skrúbba mikið en ekki fengið fullkominn árangur enn.
Datt þetta allt í einu í hug þegar ég hugsaði um það hversu hrein hedd eru þegar maður fær þau úr yfirhalningu. Hreinsuð með því að láta þau liggja í e-u sérstöku hreinsiefni yfir nótt.
Það væri vel reynandi að láta taka dekkið af og láta felguna liggja yfir nótt. Hver kannast ekki við felgur með miklu ógeðslugu bremsuryki "innbrenndu" í felguna. Ef þetta myndi virka væri þetta talsvert ódýrara en að láta glerblása og húða felguna og rykið þá ekki innbrennt. Ventlalok eru oft hreinsuð á sama hátt og þú eru oft húðuð.

Author:  Fieldy [ Sat 15. Jul 2006 13:13 ]
Post subject: 

http://ccgi.conceptchemicals.plus.com/c ... groupid=36

eða þetta

http://ccgi.conceptchemicals.plus.com/c ... groupid=37

+ góðan bursta

hefur alltaf virkað hjá mér :)

Author:  burgerking [ Sat 15. Jul 2006 13:16 ]
Post subject:  Re: Þrif á felgum (mjög skítugum)

Bjarki wrote:
Er til e-ð efni sem þrífur drullu af hlutum án þess að éta upp húðanir og hægt er að blanda saman með vatni og láta hlutina liggja í yfir nótt.
Er með skítuga álfelgu sem ég þarf að hreinsa, búinn að úða á hana miklu magni af hreinsiefnum og skrúbba mikið en ekki fengið fullkominn árangur enn.
Datt þetta allt í einu í hug þegar ég hugsaði um það hversu hrein hedd eru þegar maður fær þau úr yfirhalningu. Hreinsuð með því að láta þau liggja í e-u sérstöku hreinsiefni yfir nótt.
Það væri vel reynandi að láta taka dekkið af og láta felguna liggja yfir nótt. Hver kannast ekki við felgur með miklu ógeðslugu bremsuryki "innbrenndu" í felguna. Ef þetta myndi virka væri þetta talsvert ódýrara en að láta glerblása og húða felguna og rykið þá ekki innbrennt. Ventlalok eru oft hreinsuð á sama hátt og þú eru oft húðuð.


Bara kaupa tunnu af tjöruhreinsi... tannbursta og byrja :D


Annars veit ég ekki alveg hvaða efni er best... :(

Author:  Benzari [ Sat 15. Jul 2006 14:46 ]
Post subject: 

Sámur Turbo hefur alltaf náð mestu, Sonax Hard wax svo tekið restina.

Author:  Hannsi [ Sat 15. Jul 2006 15:22 ]
Post subject: 

við erum með það besta í vinnunni. notum það til að fjarlæga drullu þegar við límum inní felgurnar blí

Author:  lulex [ Sat 15. Jul 2006 16:52 ]
Post subject: 

Mæli með sám 2000 turbo tjöruhreinsinum og svo ferð og spreðar seðlunum i auto glym felgu burstan,, ég veit að hann er pricy, en hann virkar betur en uppþvottaburstadrasl

Author:  Svezel [ Sat 15. Jul 2006 18:21 ]
Post subject: 

Ég fékk einhverntímann álhreinsi hjá würth sem innihélt smá saltsýru og náði ógeðslegu 15" vetrarfelgunum af gamla e39 bílnum bara helvíti góðum með þeim. Ég lét þetta liggja í einhvern smá tíma þangað til ég nuddaði aðeins með bursta og smúlaði svo herlegheitin af, þurfti reyndar 2 umferðir á verstu blettina þar sem þessar felgur höfðu ekki verið þrifnar í svona 4ár en þetta hafðist allt fyrir rest :)

Author:  @li e30 [ Sat 15. Jul 2006 18:30 ]
Post subject: 

Eru þetta felgurnar af hvíta bílnum ??? m5 replicur ??

Ef svo er held ég að þetta sé frekar vonlaust því þetta er ekki bremsuryk heldur bremsu flísar, það það sama og er yfir alla vinstri hliðina á bílnum.
Held að það sé nánast ómögulegt að ná þessu af þannig að felgurnar verði góðar. :?

Author:  íbbi_ [ Sat 15. Jul 2006 19:02 ]
Post subject: 

hef lent í slíku.. alveg vonlaust næstum að nmá því af

Author:  Bjarki [ Sat 15. Jul 2006 19:12 ]
Post subject: 

Þetta er hardcore dæmi, ég er auðvitað búinn að prófa sám Turbo og allt hitt, ég er ekki heimskur!

Hannsi wrote:
við erum með það besta í vinnunni

o.k. hvað er það besta, efni sem heitir "Það besta" eða e-ð annað?

Svezel wrote:
Ég fékk einhverntímann álhreinsi hjá würth sem innihélt smá saltsýru

Þetta mun ég kaupa á mánudaginn og prófa.

@li e30 wrote:
Held að það sé nánast ómögulegt að ná þessu af þannig að felgurnar verði góðar.

Þetta eru þessar m5 replicur
Felgan er nú þegar komin vel á veg, og farin að líta mjög þolanlega út, þó ekki fullkomin.

Að sjá þetta case er algjör snilld! Þetta er þynnsti bremsudiskur sem ég hef séð. Bíllinn hefur bremsað með ónýtum klossa í disk lengi lengi.
Lakkið á bílnum verður ekkert mál að fá gott.

Author:  bjahja [ Sat 15. Jul 2006 20:38 ]
Post subject: 

Passaðu þig bara að skemma ekki húðina á felgunni

Author:  Hannsi [ Sat 15. Jul 2006 21:14 ]
Post subject: 

Man ekki hvað það heitir en get reddað nafninnu á Mánudaginn ;)

Author:  saemi [ Sat 15. Jul 2006 22:28 ]
Post subject: 

Bjarki wrote:

Svezel wrote:
Ég fékk einhverntímann álhreinsi hjá würth sem innihélt smá saltsýru

Þetta mun ég kaupa á mánudaginn og prófa.


Ég á þetta Bjarki, er í aðstöðunni held ég örugglega

Author:  Hrannar [ Sun 16. Jul 2006 00:21 ]
Post subject:  Skítur á felgum

Já Würth felguhreinsirinn er massa góður. En hann má ekki
liggja of lengi á vegna þess að það er sýra í honum, en hann
VIRKAR

Author:  Bjarki [ Mon 17. Jul 2006 14:12 ]
Post subject: 

Prófaði Würth hreinsinn í gær, fór helvíti langt með honum en ekki alveg. A.m.k. hefur þetta tekið miklum breytingum.
Það þarf samt að fara margar umferðir á svona illa útlítandi felgur. Bursti, svampur, tannbursti, mikill tími og mikið magn af ógeðslegum efnum.....
Prófaði svo Würth hreinsinn á venjulega skítuga felgu og þetta er mjög gott efni það er ekki hægt að neita því.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/