Page 1 of 1

mælaborð dettur út í e36

PostPosted: Thu 13. Jul 2006 23:06
by Ketill Gauti
Ég var á rúntinum í dag og þá dettur alltíeinu mælaborðið út hjá mér þ.e.a.s. allir mælar fara í núllstöðu eins og drepið hefur verið á bílnum. :? En svo þegar maður danglar svo aðeins í mælaborðið þá kviknar á öllu draslinu aftur og allt er orðið eðlilegt þangað til þetta gerist aftur. Þetta hagar sér eins og einhverskonar sambandsleysi sé í einhverjum snúrum sem eru í mælaborðinu svo ég er að spá hvort þetta sé jarðsambandið eða eitthvað því um líkt. En ég spyr ykkur hvaða hugmynd þið hafið um þetta? En það getur vel verið að það séu svo mörg atriði sem geta verið að en það verður bara að hafa það.

Vona að ég hafi orðað þetta nógu vel til að þetta skiljist :oops:

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 00:19
by pallorri
Ertu búinn að prófa að rífa mælaborðið úr og jugga saman tengjunum til þess að athuga með sambandsleysi?

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 16:11
by grettir
Getur verið að hleðslan sé léleg? Mælarnir létu svona í mínum rétt áður en hann varð rafmagnslaus þegar alternatorinn bilaði.

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 23:48
by Ketill Gauti
Takk takk ég prufa þetta.
Verst að ég þarf að nota hann í brúðkaupi á morgun og leiðinlegt ef mælaborðið er með leiðindi :x

PostPosted: Sat 15. Jul 2006 06:02
by Bjarki
Virðist vera nokkuð algengt í e36 mælaborðum. Hef ekki ennþá fundið lausn á þessu máli, eins og t.d. lausnin á e34/e32 mælaborðunum, skipta um nokkra þétta.
En varðandi brúðkaupið er ekki málið að fylla bara bílinn af bensíni.....ættir að vera nokkuð öruggur þannig.

PostPosted: Sat 15. Jul 2006 13:03
by Ketill Gauti
Bíllinn verður sko brúðarmeyjarbíll þannig að það væri skemmtilegra að hafa hann í 100% lagi :)

PostPosted: Sat 22. Jul 2006 21:04
by Ketill Gauti
Jæja mælaborðið er ónýtt :( þ.e.a.s mælaborðplatan á bakvið svo hafiði einhverja verðhugmynd á nýrri plötu?

PostPosted: Sat 04. Nov 2006 02:00
by siggik1
já mitt hegðar sér svipað, er einmitt sennilega að fara panta nýtt af ebay

veit að þetta er gamall þráður, var bara aðeins að grafa ;)

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 01:12
by Tommi Camaro
Ketill Gauti wrote:Jæja mælaborðið er ónýtt :( þ.e.a.s mælaborðplatan á bakvið svo hafiði einhverja verðhugmynd á nýrri plötu?

held að ég eigi til aukamælaborð

PostPosted: Tue 07. Nov 2006 17:53
by siggik1
geturu athað ? :S