Page 1 of 1

Kraftpúst!!!

PostPosted: Wed 04. Jun 2003 23:18
by Jolly MF
ég var að spá í hvað væri svona það mesta sem þú getur fengið út úr Kraftpústi í hestöflum þá talað, bara kraftpústi. :)

er samt ekki oftast bara talað í prósentum um aukninguna á aflinu eftir breytingar ??? :shock:

PostPosted: Wed 04. Jun 2003 23:37
by benzboy
Hvað meinar þú með kraftpústi?
ef þú meinar kút með krómstútum myndi ég segja 0,0001% eða svo
ef þú ert hinsvegar að tala um almennilegar flækjur og opið púst getur þetta verið svona 3-10% held ég

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 00:14
by GHR
Þetta munar aðallega á turbóbílum og munar litlu sem engu á N/A vélum.
Samt ef boostið er standard þá skiptir þetta litlu sem engu líka á Turbóvélum, fínt ef boostpressure er aukið :wink:

Það eru nú bara flestir sem setja svona ''kraftpúst'' undir út af dýpri hljóm sem kemur frá vélinni. Skárra en að hlusta á saumavélahljóðin sem flestir bílar láta í sér heyra :wink:

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 01:41
by JollyMF
ég bara að spá vegna þess að það var gaur sem ég er að vinna með sem er kónískur lygari sem var að reyna að segja mér að hann hafi fengið 16 hestöfl út úr kraftpústinu sínu (ekki flækjur) og hann er á Sjálfskiptum Sunny 1600cc bíl.

Mig langaði bara helst að fá að vita hvað það væri það mesta sem er aflaukninginn með svoleiðs púst svo ég geti Face-að hann næst í vinnunni

svo sagði hann mér í dag að hann hefði tekið Yaris T-sport í spyrnu á sjálskipta sunnynum sínum sem mér finnst svona frekar mikið ótrúlegt

ég gæti skemmt ykkur lengi með sögunum hans alveg ótrúlegt hvað hann lýgur :D

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 01:46
by Jolly MF
já ég gleymdi hann hefur átt 4 svona bíla og þeir hafa allir verið í kringumm 200 hestöfl allir 1600cc "ég seti bara flækjur og tölvukubb og svoleiðis þá er hann kominn í 198 hestöfl " SHIT ¨!!!! ég er að pæla að taka þetta upp á kameru og sýna í bíó ég myndi vinna óskar pottþétt :D

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 08:20
by GHR
Sumir eru bara fæddir lygarar :wink:
Ég myndi skjóta á mesta lagi 12-15hö aflaukningu ef farið er útí alveg opið kerfi (þ.e án hvarfakúts og hljóðkúta) en þá verður gamla pústkerfið líka að vera helv... illa hannað og þröngt.

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 09:34
by Gunni
Jolly heitir þessi gaur nokkuð Viggó ?? :lol:

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 12:05
by Haffi
ROFL 200hp úr 1600cc Sunny?!?!?!?!???? :) með kraftpústi tölvukubb og flækjum....
Ég elska líka að krúsa á mínum 270hp 320 með opnu pústi og í "sportinu" á skiptingunni :)

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 13:17
by benzboy
Minn er að nálgast 1000 hestöflin eftir að ég sprautaði grillið upp á nýtt það bætir svo mikið loftflæðið inn eða þannig :lol: skiljiði :shock: sko 8)

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 18:12
by Jón Ragnar
ég elska að hata svona lygalaupa :D:D:D

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 18:55
by bjahja
Hann hefur fengið svona í mesta lagi 7 hestöfl með pústinu, eins og "750IA" sagði þá gerir þetta nánast ekkert fyrir N/A bíla. Hvað þá bíla með 1600 vél.

PostPosted: Thu 05. Jun 2003 20:33
by Schulii
það gerir ekki rassgat að vera með "kraftpúst" :santa:
eins og einn sagði hérna ofar að þá er þetta bara til að gera hljóðið í 4cyl bílum ENN hallærislegra eða svona wannabe 6 cyl..
Kraftpúst my ass.. allavega breytist ég ekki í tröll þegar ég borða tröllatópas

PostPosted: Fri 06. Jun 2003 21:34
by iar
Kraftpúst? Er það ekki svona "prumppúst"? Gjörsamlega óþolandi hávaði. :lol:

PostPosted: Sat 07. Jun 2003 01:47
by hlynurst
Gæti verið. :lol:

Remus er samt málið... :wink:

PostPosted: Sat 07. Jun 2003 02:17
by Dr. E31
hlynurst wrote:Gæti verið. :lol:

Remus er samt málið... :wink:


Já, Remus er málið held ég, núna hef ég reynslu af því. :D Og það er ekkert "prumppúst" hljóð í Remus, bara ljúft mal. 8)