Page 1 of 1

Hvert skal fara með hedd í viðgerð??

PostPosted: Wed 12. Jul 2006 15:12
by ömmudriver
Sælir strákar,

Þannig er mál með vexti að ég þarf að láta yfirfara heddið í bílnum mínum, ég fer með heddið eitt og sér á verkstæðið.
Hverjum mæla menn með ?? Eða er Kistufell bara málið ??
Endilega koma með skoðanir og reynslusögur :D

Með fyrirfram þökk,
Arnar

PostPosted: Wed 12. Jul 2006 15:57
by elli
kistufell er flott. Fór þanað með heddið af mínum. Hreinsun, þrýstiprófun, athugun á þéttingum kostaði um 6000.

Ég hef bara góða reynslu af þeim nema hvað þeir dæmdu heddið ÓNÝTT en það var ekki þeim að kenna :cry:

PostPosted: Wed 12. Jul 2006 20:33
by O.Johnson
Vélaverkstæði Egils á Smiðjuveginum

Topp náungar, topp vinnubrögð og verðið bara í lagi

PostPosted: Thu 13. Jul 2006 00:05
by Tommi Camaro
Þ.jónsson
kistufell er bara okurbúlla AF minni reynslu

keyfti pakknigar sett þar síðan þegar ég fór að lesa mig um þá fengu þær lélegar dóma og þær raðlögu þær ekki í turbo bíll,sem sagt CHEAP varahlutir

PostPosted: Thu 13. Jul 2006 07:46
by Alpina
Tommi Camaro wrote:Þ.jónsson
kistufell er bara okurbúlla AF minni reynslu

keyfti pakknigar sett þar síðan þegar ég fór að lesa mig um þá fengu þær lélegar dóma og þær raðlögu þær ekki í turbo bíll,sem sagt CHEAP varahlutir


Var þetta sett fyrir TURBO bíl ???

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 14:21
by ömmudriver
TT

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 14:24
by JOGA
Ég var með stakt hedd úr 200sx sem ég lét plana, þrýstiprófa og hreinsa fyrir mig 2004.

Fór bæði í Kistufell og Þ.Jónsson og leitaði verða og fékk betri verð og betri þjónustu í Þ.Jónsson í það skiptið.

Þannig að ég get ekki annað en mælt með þeim.

PostPosted: Fri 14. Jul 2006 15:14
by Bjarki
Fékk mjög góða þjónustu hjá Kistufelli nýlega.
Hröð þjónusta, tímasetningar stóðust og verðið var eins og maður bjóst við. Þ.e. áætlun og raun það sama eða lægra. Þetta verður aldrei ódýrt þar sem þetta eru faglærðir starfsmenn í útseldri vinnu og dýr tækjabúnaður á bak við þetta.
Starfsmenn Kistufells láta vel af þessum slípisettum og hafa notað þau nokkuð oft.