bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hátalaraspurning. E 39
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=16354
Page 1 of 2

Author:  Jonni s [ Mon 10. Jul 2006 22:13 ]
Post subject:  Hátalaraspurning. E 39

Mér fannst sándið eitthvað skrítið í 523 touring e39 og fór þá að skoða málið og þá kom í ljós að það heyrist bara í 4 hátölurum af 10. Það sem sé heyrist ekkert í hátölurunum sem eru efst á hurðarspjöldunum aftur og fram í bílnum og svo heyrist ekkert í tweeterunum sem eru í gluggapóstunum á framhurðunum. Mér finnst svolítið undarlegt ef þeir eru allir sprungnir.

Author:  Einsii [ Mon 10. Jul 2006 23:02 ]
Post subject: 

eru hátalarar þarna undir ?

Author:  Jonni s [ Mon 10. Jul 2006 23:19 ]
Post subject: 

Já þetta er ansi mögnuð spurning. Ég var bara ekki farinn að hugsa svo langt. En það gæti sum sé verið þannig?

Author:  Kull [ Mon 10. Jul 2006 23:48 ]
Post subject: 

Já, mjög líklegt að það séu ekki hátalarar þarna. Þú þarft að hafa einhvern fínan DSP sound pakka til að það séu 10 hátalarar minnir mig.

Author:  Jonni s [ Tue 11. Jul 2006 00:08 ]
Post subject: 

Ahhhh þarna kom það...

Eru þá ekki fleiri EQ möguleikar inní tölvunni og svoleiðis??

Author:  Schulii [ Tue 11. Jul 2006 10:11 ]
Post subject: 

Ég verð nú að segja það að mér finnst mjög kjánalegt að hafa hátalaragrindina en enga hátalara undir :? Skrítin vinnubrögð meesa thinx!

Author:  Einsii [ Tue 11. Jul 2006 10:32 ]
Post subject: 

Schulii wrote:
Ég verð nú að segja það að mér finnst mjög kjánalegt að hafa hátalaragrindina en enga hátalara undir :? Skrítin vinnubrögð meesa thinx!

Reyna að halda kostnaði aðeins í hófi.. Væri dýrt að gera nýja innréttingu fyrir hvert model af E39..
Annars fyrir þá sem eru með ódýrari týpurnar af orginal útvarpinu í E39 þá borgar sig að skipta um útvarpið.. magnarinn í því er alveg glataður..

Author:  Angelic0- [ Tue 11. Jul 2006 10:37 ]
Post subject: 

their sem ad eru med Harman Kardon Logik (Hi-Fi) pakkann eru med 10 hatalara!

Eg er med RCA convertora a fram og afturhljodrasum hja mer, thannig ad eg get tengt magnara vid orginal taekid mitt!

Author:  Jonni s [ Tue 11. Jul 2006 11:33 ]
Post subject: 

Quote:
Eg er med RCA convertora a fram og afturhljodrasum hja mer, thannig ad eg get tengt magnara vid orginal taekid mitt!


Er það eitthvað sem þú settir í sjálfur?

En veit einhver hvar er hægt að nálagast teikningu af leiðslum frá magasíni út í tæki og frá tæki út í hátalara.

Author:  Angelic0- [ Tue 11. Jul 2006 11:42 ]
Post subject: 

var reyndar i fyrir afturhatalarana, en eg setti i fyrir framhatalarana og thad er i planinu ad kaupa eitthvad staerra og betra thegar buddan leyfir !

Author:  iar [ Tue 11. Jul 2006 16:37 ]
Post subject: 

Schulii wrote:
Ég verð nú að segja það að mér finnst mjög kjánalegt að hafa hátalaragrindina en enga hátalara undir :? Skrítin vinnubrögð meesa thinx!


Ég er sammála. Mér hefur sýnst í E39 svipað og í E36 að ef þú ert ekki með HIFI kerfið þá ertu með færri hátalaragrindur í innréttingunni. Þ.e. ekki tómar grindur.

Gæti þetta ekki bara verið einhver bilun í HIFI kerfinu, jafnvel bara farið öryggi eða eitthvað sambandsleysi?

Author:  Jonni s [ Wed 12. Jul 2006 10:24 ]
Post subject: 

Jú það gæti alveg verið. Ég þarf bara að fara kíkja betur á þetta.

Author:  Jonni s [ Wed 12. Jul 2006 11:41 ]
Post subject: 

Get ég ekki fundið þetta út frá verksmiðjunúmerinu þ.e.a.s hvort bíllinn hafi verið framleiddur með öllum þessum hátölurum eður ei.

Ég fann svona "Vin Decoder" síðu en hún sagði mér bara hluti er varða vélbúnaðinn. Kom ekkert fram um aukahluti.

Author:  iar [ Wed 12. Jul 2006 11:58 ]
Post subject: 

Jonni s wrote:
Get ég ekki fundið þetta út frá verksmiðjunúmerinu þ.e.a.s hvort bíllinn hafi verið framleiddur með öllum þessum hátölurum eður ei.

Ég fann svona "Vin Decoder" síðu en hún sagði mér bara hluti er varða vélbúnaðinn. Kom ekkert fram um aukahluti.


Ef listinn yfir búnaðinn er ekki límdur framarlega í hand- eða þjónustubókina þá er hægt að fá listann hjá B&L.

Author:  Jonni s [ Wed 12. Jul 2006 18:38 ]
Post subject: 

Nú er þetta orðið þannig að það er hætt að heyrast í öllum hátölurum og já ég er búinn að prufa að hækka. Þetta dettur svona inn og út, kemur inn þegar ég starta bílnum og deyr svo einhverju seinna, svolítið mismunandi reyndar. Veit einhver hvar magnarinn er staðsettur, eða er hann í tækinu sjálfu?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/