bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bara heitt loft frá miðstöð, og víbringur í bílnum
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=16320
Page 1 of 1

Author:  98.OKT [ Sun 09. Jul 2006 13:59 ]
Post subject:  Bara heitt loft frá miðstöð, og víbringur í bílnum

Sælir, í þessum hita seinustu daga er frekar pirrandi að vera að keyra um í bílnum mínum þegar það kemur bara heitt loft frá miðstöðinni nema í miðjustokknum farþegameginn þar kemur stundum kalt og stundum volgt :x veit einhver hvað málið gæti verið?


Og svo annað, þegar ég er kominn uppí svona ca. 70.kmh og uppí ca.95 þá er voðalega mikill víbringur í öllum bílnum, svo einstaka sinnum kemur ekki neitt, það er mjög ólíklegt að þetta sé balesering á dekkjunum því þetta kom líka þegar önnur dekk/felgur voru undir honum :? dettur einhverjum eitthvað í hug?

Author:  xzach [ Sun 09. Jul 2006 14:29 ]
Post subject: 

Hvað segir heddið gott ?

Author:  98.OKT [ Sun 09. Jul 2006 17:54 ]
Post subject: 

xzach wrote:
Hvað segir heddið gott ?


Ef heddið væri farið þá kæmi bara kalt loft :wink:

Author:  Danni [ Sun 09. Jul 2006 23:36 ]
Post subject: 

Það er svipað vesen með miðstöðina hjá mér, kemur bara heitt á rúðuna og bara kalt úr mælaborðinu, nema það er ekki hægt að slökkva á blástrinum á framrúðuna, sama hvað! Böggar mig samt ekki, læri bara að lifa við þetta 8)


Og með titringinn, getur kannski verið að drifskaptsupphengjan sé orðin léleg. Það var allvega vandamálið hjá einum félaga mínum á M50 520 E34, skipti um þessa upphengju og allt var komið í lag.

Author:  íbbi_ [ Mon 10. Jul 2006 01:10 ]
Post subject: 

miðstöðin í þessum bíl hefur alltaf verið algerlega sjálfstæð og ósamvinnuþýð hvað varð stillingar.. þegar ég fékk bílin þá kom bara heitt þegar það var heitt úti og kalt þegar það var kalt úti,

ég skipti um stjórnborðið fyrir þetta, var með 3-4 stk og þau voru öll sona nema eitt og ég setti það í, hann hélst í lagi ´þaðan í frá en er greinilega að verða sona aftur?

annars er þetta helv algengt í þessum bílum, var í lagi í svarta bílnum mínum sem þessi fékk vélina úr, er bjarki ekki að rífa hann?

Author:  íbbi_ [ Mon 10. Jul 2006 01:11 ]
Post subject: 

btw.. skaptið yfirgaf bílin líka á ferð, reyndar rétt eftir að ég seldi hann, og það var væntanlega lagað? gæti tengst því eitthvað, nema þetta sé bara upphengjan. kostar kúk og kanil

Author:  moog [ Mon 10. Jul 2006 01:12 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
annars er þetta helv algengt í þessum bílum, var í lagi í svarta bílnum mínum sem þessi fékk vélina úr, er bjarki ekki að rífa hann?


Rifinn og búinn að vera...

Author:  íbbi_ [ Mon 10. Jul 2006 01:16 ]
Post subject: 

:( :!:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/