bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E28 525->535?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=16295
Page 1 of 2

Author:  Bjöggi [ Thu 06. Jul 2006 19:28 ]
Post subject:  E28 525->535?

er með gamlan 525 og mér er tjáð að í honum sé M30B25. Nú stendur mér til boða kjallari (allt fyrir neðan hedd, heddið sprakk) úr E32 735 með M30B35. Er það möguleiki að bolta heddið af þeim minni beint á stærri mótorinn.

þarf ég aðra tölvu?
mun bíllinn koma til með að svelta á bensíni?
er sama þjapphlutfall í heddinu, þyrfti að porta það?
þarf ég þykkari/þynnri pakkningu?

allar upplýsingar vel þegnar...

BT

Author:  saemi [ Thu 06. Jul 2006 19:44 ]
Post subject: 

Þú ert með gamla L-jetronic kveikjukerfið. Ég myndi aldrei fara út í svona breytingar nema fá allt dótaríið með 3.5L vélinni, hitt er bara vesen. Ég veit ekki hvort heddið passar, er ekki viss um það. Það eru allavega minni ventlar. En þú munt ekki græða neitt nema að fá aðra innspýtingu á mótorinn, það kom aldrei neitt stærra en 2.8 með þessarri L-jetronic.

Portun hefur ekkert með þjöppu að gera. Það er aldrei hægt að fá þynnri heddpakkningu.

Author:  Bjöggi [ Thu 06. Jul 2006 19:50 ]
Post subject: 

ég get fengið allt með vélinni sem hugsast getur, þá vantar bara clean svar, passar heddið???

er ekki einhver þarna úti sem veit það fyrir víst??

BT

Author:  Alpina [ Thu 06. Jul 2006 19:53 ]
Post subject: 

The Executive wrote:
ég get fengið allt með vélinni sem hugsast getur, þá vantar bara clean svar, passar heddið???

er ekki einhver þarna úti sem veit það fyrir víst??

BT

Heddið passar en ventlarnir eru o vs O þannig að aflaukningin er ekkert spes

Author:  X-ray [ Thu 06. Jul 2006 20:03 ]
Post subject: 

The Executive wrote:
ég get fengið allt með vélinni sem hugsast getur, þá vantar bara clean svar, passar heddið???

er ekki einhver þarna úti sem veit það fyrir víst??

BT


Einga bölvaða vitleysu eða nísku, færð þér bara hedd af 3,5 bíl.

Author:  saemi [ Thu 06. Jul 2006 20:14 ]
Post subject: 

Einmitt. Ef þetta er e-r spurning þá bara færðu þér nýtt hedd og reddar þessu þannig. Það væri bara bömmer að fara að setja 2.5L hedd á 3.5L vélina..

Author:  Bjöggi [ Thu 06. Jul 2006 21:19 ]
Post subject: 

Ég þakka svörin, ég er samt ákveðinn í að smella mér á þetta því þetta kostar mig sama og ekki neitt. Helv. heddið þarf bara að passa. Svo bíð ég bara eftir að detta niðrá rétt hedd og hendi því bara á um þegar þar að kemur. Þetta mun reyndar ekki gerast fyrr en í vetur, en þið fáið alveg örugglega að fylgjast með...

BT

Author:  elli [ Fri 07. Jul 2006 09:45 ]
Post subject: 

Þessi staða hefur komið upp þar sem ég er með 735 sem er með ónýtt hedd. Til stendur að skipta bara complet um vél í honum þar sem það virðist ekki kosta meira en stakt hedd, eins furðulegt og það er nú. Það gerir það að verkum að til er M30B35 með öllu nema heddi, þannig að okkur datt í hug að þetta væri sniðugur leikur í vetur.

kv.
Elli

Author:  Stebbtronic [ Sun 09. Jul 2006 21:27 ]
Post subject: 

elli wrote:
Til stendur að skipta bara complet um vél í honum þar sem það virðist ekki kosta meira en stakt hedd, eins furðulegt og það er nú.


Hvernig má það vera ef að hedd er á uþb 100 EUR eða minna úti að það borgi sig að fá nýja vél? :-k

http://cgi.ebay.de/BMW-M30-3-5l-Zylinde ... dZViewItem

Author:  Bjöggi [ Mon 10. Jul 2006 07:53 ]
Post subject: 

Segjum að við fengjum þetta hedd á c.a. 100 e.u. Hvað ætli það kosti hingað komið með öllu, tollum og vsk.??

Author:  elli [ Mon 10. Jul 2006 08:28 ]
Post subject: 

Stebbtronic wrote:
elli wrote:
Til stendur að skipta bara complet um vél í honum þar sem það virðist ekki kosta meira en stakt hedd, eins furðulegt og það er nú.


Hvernig má það vera ef að hedd er á uþb 100 EUR eða minna úti að það borgi sig að fá nýja vél? :-k

http://cgi.ebay.de/BMW-M30-3-5l-Zylinde ... dZViewItem


Þau hedd sem mér hafa verið boðin hérna heima kosta EKKI 100 € því miður. Þau kosta næstum 10x meira. En ef þetta er málið þá stekk ég á þetta. Ég var búinn að skoða þetta aðeins það er EBAY en fannst lítið vera til.
kv.
Elli

Author:  elli [ Mon 10. Jul 2006 09:48 ]
Post subject: 

Eru sömu hedd á M30B35 í EUR og USA?

Author:  íbbi_ [ Mon 10. Jul 2006 11:20 ]
Post subject: 

ég myndi nú ekki vera viss, E32 735 usa voru tæp 190hö þannig að það er einhver munur, í hverju sem hann svo nú liggur

Author:  elli [ Mon 10. Jul 2006 12:20 ]
Post subject: 

ætti maður að láta vaða á þetta hedd (sem er linkað hér að ofan) þarna er að vísu ekkert pay pal :( ég er hálf ragur við þetta.

veit einhver hverjir tollar eru á innfl. varahluti er það:
(verð hlutar+tollur)*1.245=heimkomið

Author:  Stebbtronic [ Wed 12. Jul 2006 22:35 ]
Post subject: 

elli wrote:
Eru sömu hedd á M30B35 í EUR og USA?


Það eru sömu heddin á báðum,

En smá hint: þegar þú pantar varahluti frá útlöndum skaltu biðja seljandann um að útbúa einhversskonar kvittun, þarf ekki að vera merkilegur pappír nema að verðið sem að skrifast á pappírinn er mun lægra en raunverulegt verð t.d 450EUR hlutur þá biðuru seljandann um að útbúa kvittun fyrir 110EUR, svo læturðu póstinn opna sendinguna þegar hún kemur til að leita að kvittunum svo að þeir geti verið tilbúnir með tollanótuna þegar að þú sækir vöruna þá er undantekningalaust tekið verðið af fals kvittuninni og þú sparar þér hellings peninga, Þetta hefur aldrei klikkað hjá mér en ég hef líka alltaf látið þá(seljendurna) hafa eitthvað í vasann fyrir ómakið.
8)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/