Page 1 of 1

Fastur í sportstillingu???

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 17:58
by stebbihall
er í smá veseni með bílinn hjá mér,skellti skiptingunni hja mer úr E í S í gærkvöldi,en bíllinn neitar að fara úr sportinu,er eitthvað öryggi fyrir þessa stillingu eða gæti takkinn einfaldlega verið ónýtur hjá mér...hjálp !!!

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 17:59
by Danni
er hann ennþá í sport ef þú drepur á honum og setur í gang aftur? Minn fór allavega í E við það...

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 18:09
by stebbihall
´já var búinn að prófa það,þegar eg ýti á E þá kemur E í mælaborðið,en um leið og ég sleppi þá fer hann aftur í sport

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 18:18
by BrynjarÖgm
og er það ekki bara gaman?

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 18:25
by stebbihall
jú jú gaman en eins og bensín verðið er í dag,dýrt...samt gaman 8)

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 21:25
by D@BBI
sama gerðist hjá mér, prufaði að blása með lofti á takkann og hann lagaðist, var bara samansöfnuð drulla og ryk.

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 22:53
by frodo325
ég lenti í þessu hjá mér um daginn, hann fór alltaf úr E yfir í S en ekki til baka nema ef ég drap á honum og startaði aftur þá fór hann alltaf aftur í byrjunarstillinguna (E) svo ég skellti mér uppí garðabæ á partasöluna þar og fékk hjá honum svona takka og skipti um hann, og allt í góðu lagi núna, gæti verið að takkinn þinn sé bara svona handónýtur.
ættir að prófa að renna á partasöluna og sjá hvort hann eigi svona takka handa þér

PostPosted: Sun 25. Jun 2006 23:00
by stebbihall
Var að rífa takkann upp og þreif hann en þetta lagaðist ekki,best að fara að hringja á partasölurnar á morgun :cry:

PostPosted: Mon 26. Jun 2006 18:43
by Hannsi
ég er búinn að þrífa alla takka í mínum og þeir eru super soft núna 8)

PostPosted: Mon 26. Jun 2006 19:57
by stebbihall
komið í lag,var frekar pirrandi að komast ekki í 4 gírinn,ægileg þensla í gangi í utanbæjarakstri,hann hreinlega þambaði bensínið :o

PostPosted: Mon 26. Jun 2006 20:03
by Hannsi
stebbihall wrote:komið í lag,var frekar pirrandi að komast ekki í 4 gírinn,ægileg þensla í gangi í utanbæjarakstri,hann hreinlega þambaði bensínið :o

öss minn er 5 þrepa þannig hann væri alltaf í 4 hjá mér
vá ég væri í 5300rpm ef ég væri í 3 þrepi á 100 :?

PostPosted: Tue 27. Jun 2006 19:44
by stebbihall
á 110 í þriðja þrepi fer hann bara i 2800 rpm 8)