bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Varðandi rafmagnsspegla á E30 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=16092 |
Page 1 of 1 |
Author: | Geirinn [ Wed 21. Jun 2006 22:02 ] |
Post subject: | Varðandi rafmagnsspegla á E30 |
Sælir. Ég vil byrja á að benda á það að ég notaði leitina en hún skilaði engum árangri sama hvað ég reyndi. Rafmagnsspeglarnir hjá mér virka ekki og ég skil ekki afhverju. Ég er búinn að athuga öryggið og það er í lagi (rás 19) og á sömu rás eru ljósin innan í bílnum og miðstöðin... en það tvennt virkar bæði. Ég veit reyndar að það eru fleiri öryggi sem covera ljósin og miðstöðina að hluta. Ég er búinn að athuga líka vírana sem liggja í falsinu í hurðina og þar virðist allt vera heilt og joystickið fyrir speglana virðist líka vera heillegt. Því spyr ég... hvaða þætti ætti ég að athuga næst ? Af með hurðarspjaldið og athuga vírana þar eða kannski mæla eitthvað til að finna út hvort rofinn virki almennilega eða er þetta common problem sem er einföld lausn við ? Með fyrirfram þökk, Geiri. |
Author: | burgerking [ Wed 21. Jun 2006 22:49 ] |
Post subject: | |
Báðir speglarnir? |
Author: | arnibjorn [ Wed 21. Jun 2006 22:50 ] |
Post subject: | |
burgerking wrote: Báðir speglarnir?
Hann talar allavega um rafmagnsspeglana ![]() |
Author: | burgerking [ Wed 21. Jun 2006 22:51 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: burgerking wrote: Báðir speglarnir? Hann talar allavega um rafmagnsspeglana ![]() ![]() en gæti það verið þetta? http://www.bmwe30.net/cgi-bin/datacgi/d ... Section=02 |
Author: | Geirinn [ Wed 21. Jun 2006 23:05 ] |
Post subject: | |
burgerking wrote: arnibjorn wrote: burgerking wrote: Báðir speglarnir? Hann talar allavega um rafmagnsspeglana ![]() ![]() en gæti það verið þetta? http://www.bmwe30.net/cgi-bin/datacgi/d ... Section=02 Jámm, báðir speglarnir. Var reyndar búinn að lesa þessa grein en einhvernveginn var ég svo steiktur að misskilja þetta herfilega svo ég hætti að lesa. En það verður eitthvað svona prófað... bara voðalega skrítið eitthvað hvernig þetta er. Eitthvað annað til í dæminu ? |
Author: | ///M [ Wed 21. Jun 2006 23:12 ] |
Post subject: | |
hafa þeir virkað hjá þér? speglarnir í mínum bíl voru aftengdir ásamt hitanum í þá þegar ég fékk minn...veit ekki allveg afhverju samt |
Author: | Geirinn [ Wed 21. Jun 2006 23:28 ] |
Post subject: | |
///M wrote: hafa þeir virkað hjá þér? speglarnir í mínum bíl voru aftengdir ásamt hitanum í þá þegar ég fékk minn...veit ekki allveg afhverju samt
Nei þeir virkuðu ekki þegar ég fékk bílinn. ![]() Var mikið mál að tengja þína ? |
Author: | ///M [ Wed 21. Jun 2006 23:36 ] |
Post subject: | |
neinei einhver fyrverandi eigandi hefur einhverntíman pluggað þeim úr sambandi,,, |
Author: | Geirinn [ Thu 22. Jun 2006 22:50 ] |
Post subject: | |
Tók hurðarspjaldið af í dag og sá að joystickið er mökkskítugt en einhvernveginn grunar mig að það sé ekki málið. Tveir vírar þarna eru reyndar rifnir, þ.e. sést í vírana þannig það er spurning hvort þeim hafi slegið saman en þá ætti væntanlega öryggið að fara.. en það er heilt. Ég hins vegar kemst ekki lengra í þessu ferli en á stig tvö: 2. Disconnect the switch from the wiring harness and use the screw driver again to separate the switch housing. 3. Separate the circuit board from the switch housing being careful not to drop the floating contacts inside. 4. Spray a generous amount of WD-40 inside the housing and on the circuit board and let them sit for a couple of minutes. 5. Use the old tooth brush to clean out the housing and copper paths of the circuit board. 6. Word of Warning: The floating contacts look like two small metal ball bearings linked together. Be careful not to lose them when you are cleaning the housing. I did not know they were not connected to the housing and I dropped one during the cleaning process. I took me a while to locate it since they are so small. Mér fannst þetta stykki bara vera í einu lagi. Það væri samt gaman að vita hvernig bilunin á rafmagnsspeglunum var hjá þessum gaur sem lagaði þetta hjá sér... hvort að speglarnir virkuðu alveg en bara illa eða hvort þeir virkuðu bara ekki yfir höfuð. Það gerist allavega ekkert hjá mér. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |